Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/straum.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 67 olidori – Page 56 – STRAUMUR
Útvarpsþátturinn Straumur á X-inu 977 í umsjón Óla Dóra fagnar í dag 10 ára afmæli. Þátturinn hóf göngu sína 26. janúar árið 2006 á XFM 91.9. Þátturinn var á dagskrá á þeirri stöð þar til hún lokaði í byrjun árs 2007. Árið 2007 fluttist þátturinn á Reykjavík FM 101.1 og var þar til 2008 þegar sú stöð lokaði einnig. Það var svo haustið 2009 sem þátturinn byrjaði á X-inu 977 þar sem hann hefur verið á dagskrá síðan.
Á þessum 10 árum hefur Straumur sérhæft sig í alhliða tónlistarumfjöllun, fengið í heimsókn helstu tónlistarmenn Íslands auk þess að hafa tekið viðtöl við erlenda tónlistarmenn á borð við Japandroids, Swans, Mac Demarco, Yo La Tengo, Jon Hopkins, !!!, Grizzly Bear, Chromeo, Dan Deacon, Wolf Parade, Klaxons, Franz Ferdinand, Dirty Beaches, Cut Copy, Dirty Projectors og marga fleiri. Þátturinn er á dagskrá á X-inu öll mánudagskvöld frá 23:00 til 0:00.
Í Straumi í kvöld verður fjallað um nýja tónlist með listamönnum á borð við Tourist, The Range, Vaginaboys, Eleanor Friedberger, Ty Segall og fleirum. Straumur með Óla Dóra milli 23:00 og 0:00 í kvöld á X-inu 977.
1) I Dig You – Beat Happening
2) Monkey Trail Treehouse – Sammy Seizure
3) To Have You Back – Tourist
4) Florida – The Range
5) Girl – Vaginaboys
6) LINKSYS – Deborah Arenas
7) Diamond Girls – Guerrilla Toss
8) Frau – Lane 8
9) Your Word – Eleanor Friedberger
10) Sweetest Girl – Eleanor Friedberger
11) Squealer – Ty Segall
12) In Heaven – Japanese Breakfast
13) Sad Person – Savages
14) Surrender – Savages
15) Hungry Like The Wolf – Shamir
Major Pink og Mosi Musik halda tónleika á Bar 11 frá klukkan 10:30. Það er ókeypis inn.
Útgáfutónleikar Skratta fara fram í kjallarnum á Palóma frá klukkan 22:00 í kvöld. Það er ókeypis inn og a & e sounds og Harry Knuckles koma einnig fram.
Dimma koma fram í Gamla Bíó. Það kostar 2900 inn og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00
Bandarísku tónlistarmennirnir Rachel Beetz og Dustin Donahue leiða saman hesta sína í Mengi frá klukkan 21:00. Miðaverð er 2000 kr.
Á rokkbarnum Dillon kemur hljómsveitin Þrír fram. Þeir hefja leika klukkan 22:00 og það kostar ekkert inn.
Laugardagur 23. janúar
Prins póló halda tónleika á Kex Hostel. Það er ókeypis inn og hefjast þeir klukkan 21:00.
Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti troop upp á Húrra. Það kostar 2000 kr inn og tónleikarnir hefjast klukka 23:00.
Í fyrsta þætti af Straumi á þessu ári verður farið yfir nýtt efni frá listamönnum á borð við DIIV, Hinds, Wild Nothing, Prince Rama, Jerry Folk og Lane 8. Straumur með Óla Dóra í kvöld á X-inu 977 frá 23:00.
Eftir fjórar vikur hefst tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík í Hörpu. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin – en aldrei fyrr hafa jafn margir listamenn og hljómsveitir komið fram á hátíðinni og í ár. Alls stíga á stokk 75 hljómsveitir og listamenn á fimm sviðum yfir þá þrjá daga sem hátíðin fer fram 18.-20. Febrúar.
Meðal þeirra sem koma fram á Sónar Reykjavík 2016 eru; Hudson Mohawke (UK), Boys Noize (DE),Angel Haze (US) Squarepusher (UK), Holly Herndon (US), Ellen Allien (DE), Floating Points (UK)Oneothrix Point Never (US), Annie Mac (UK) Ben UFO (UK), Zebra Katz (US), Black Madonna(US), Rødhåd (DE), Recondite (DE), Mumdance (UK), Wife (UK), AV AV AV (DK), Lone (UK), Eloq(DK), Koreless (UK), Páll Óskar, Úlfur Úlfur, Apparat Organ Quartet, Kiasmos, Sturla Atlas, Bjarki,Reykajvíkurdætur, Vaginaboys og President Bongo & The Emotional Carpenters.
Í dag hefur verið tilkynnt um síðustu nöfnin á dagskrá hátíðinnar, alls 11 listamenn og hljómsveitir. Í þeim flokki eru; Vök, Ruxpin, Futuregrapher, Kosmodod eða Þórður Kári úr Samaris, Tonik Ensamble sem fyrir skemmstu hlaut Kraumsverðlaun og Reykjavik-Grapevine Music Awards fyrir plötu sína Snapshots og Halleluwah hljómsveit Sölva Blöndal úr Quarashi.
Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fer fram í fjórða sinn dagana 18.-20. febrúar. Líkt og undanfarin ár mun hátíðin fara fram á fimm sviðum í Hörpu, m.a. í bílakjallara tónlistarhússins sem breytt verður í næturklúbb. Mikill áhugi er á hátíðinni á erlendum vettvangi enda vel verið látið af viðburðinum og sérkennum hans í erlendum fjölmiðlum allt frá því hún var fyrst haldin árið 2013.
Alls munu 75 hljómsveitir, listamenn og plötusnúðar koma fram á Sónar Reykjavík 2016.
Lokalag ep plötunnar We Came As We Left sem kom út 25. mars. Líkt og bandaríski fóstbróðir hans Com Truise tekur Buspin Jieber það besta úr raftónlist 9. áratugarins og blandar því saman við nýrri áherslur.
9) Enginn Þríkantur hér – Elli Grill og Leoncie
Maður mynd halda að það fá Leoncie til að syngja með sér lag væri ávísun á grínflipp sem endist ekki lengi. En þetta lag, sem er í raun endurgerð á lagi Leoncie, er alveg stórgott þó það sé líka dálítið fyndið. Takturinn er eins og fljótandi kódín og Elli Grill og Leoncie skiptast á súrrealískum línum og það er mikil kemistría á milli þeirra.
8) Endurminning (Lauren Auder) – Lord Pusswhip
Á fyrstu plötu Pusswhip úir og grúir af tilraunakenndu, lyfjuðu og pönkuðu hipp hoppi en lagið sem greip okkur mest var hið ljúfsára Endurminning þar sem hann fær söngvaranna Lauren Auder til liðs við sig. Ægifagurt í einfaldleika sínum og minnir nokkuð á skjannahvíta soul söngvarann Spooky Black.
7) Kalt – Kælan Mikla
Kalt ber svo sannarlega nafn með rentu því trommuheila og hljómborðshljómurinn er svalur virðingarvottur við drungalegt síðpönk fyrri hluta 9. áratugarins og hrá ljóðræna textans er ískaldari en sjálfur Gísli Pálmi.
6) So In Love With U – MSTRO
Reykvíski tónlistarmaðurinn Stefán Páll Ívarsson sem gengur undir listamannsnafninu MSTRO gaf út þetta stórkostlega lag í upphafi árs. Stöðugur taktur, drungaleg söngrödd og skýr skilaboð.
5) Love Love Love Love – Helgi Valur
Meistaraverk Helga Vals af plötu hans Notes from the Underground. Samið inn á geðdeild í miðju geðrofi. Stórbrotið og epískt lag um ástina.
4) We Live For Ages – Hjaltalín
Fyrsta lagið sem Hjaltalín sendir frá sér frá því að platan Enter IV kom út árið 2012. Ef þetta lag er forsmekkurinn af því sem koma skal er ekki annað hægt en að vera spenntur fyrir framtíð hljómsveitarinnar. Ferskt, kærulaust og jákvætt.
3) Stelpur – Jón Þór
Í Stelpur fangar Jón Þór kjarna þess að vera ungur, örvæntingarfullur og ástsjúkur í miðri hringiðu reykvísks næturlífs. Passlega hrátt sándið og fáránlega grípandi viðlagið klístrast við heilabörkinn í marga daga eftir hlustun.
2) Morgunmatur – GKR
GKR skapaði sér heldur betur nafn í sterkri hip hop senu á árinu með lofsöng um mikilvægustu máltíð dagsins, morgunmatinn. Þegar aðrir rapparar rappa um hvað þeir eru harðir hefur GKR ótrúlega næmt auga fyrir amstri hversdagslífsins.
1) Elskan Af Því Bara – Vaginaboys
Þessi angurværi R’n’B slagari kom eins og þruma úr heiðskýru lofti í vor. 808 trommuheili, 80’s synþar og átótúnaður söngur skapa seiðandi ástaróð sem er sexí og sorglegur í hnífjöfnum hlutföllum.
50) Alfonso Muskedunder (Deetron remix) – Todd Terje
49) Leaving Los Feliz (ft. Kevin Parker) – Mark Ronson
48) Play For Today – Belle and Sebastian
47) God It (ft. Nas) – De La Soul
46) Dreams – Beck
45) Restless Year – Ezra Furman
44) Magnets (A-Trak remix) – Disclosure
43) What’s Real – Waters
42) Israel (ft. Nonane Gypsy) – Chance The Rapper
41) La Loose – Waxahatchee
40) Standard – Empress Of
39) Huey – Earl Sweatshirt
38) Genocide (ft. Kendrick Lamar, Marsha Ambrosius & Candice Pillay) – Dr. Dre
37) Home Tonight – Lindstrom & Grace Hall
36) Lean On (Prince Fox bootleg) – Major Lazer
35) Cream On Chrome – Ratatat
34) VYZEE – SOPHIE
33) Venus Fly (ft. Janelle Monáe) – Grimes
32) Death with Dignity – Sufjan Stevens
31) Exploitaion – Roisin Murphy
30) Under The Sun – DIIV
29) Tick – Weaves
28) Hollywood – Tobias Jesso Jr.
27) Hotline Bling – Drake
26) Sunday Morning – Seven Davis Jr.
25) 1000 – Ben Khan
24) Ghost Ship – Blur
23) Can’t Feel My Face – The Weeknd
22) Pretty Pimpin – Kurt Vile
21) Breaker – Deerhunter
20) What Ever Turns You On – D.K.
19) Know Me From – Stormzy
18) Ghosting – Rival Consoles
17) Rewind – Kelela
16) Go Ahead – Kaytranada
15) Blackstar – David Bowie
14) Annie – Neon Indian
13) Pedestrian at Best – Courtney Barnett
12) Mink & Shoes (ft. David Izadi) – Psychemagik
11) Garden – Hinds
10) Them Changes – Thundercats
Bassaleikarinn og pródúsantinn Thundercat virðist hafa dottið í fusion-pottinn í æsku því Them Changes suddalega fönkí 70’s bræðingur sem Jaco Pastorius gæti verið stoltur af.
9) After Me – Misun
Washington bandið Misun sendi frá sér þetta magnaða lag í apríl. Léttleikandi og drungalegur rhythminn passar fullkomlega við stórbrotna rödd Misun Wojcik.
8) Jenny Come Home – Andy Shauf
Andy Shauf minnir í senn á The Shins og Kurt Vile í þessari tregafullu lagasmíð sem tónlistarmaðurinn flutti í Kaldalóni á Iceland Airwaves í nóvember.
7) Shutdown – Skepta
Breski grime-rapparinn Skepta sem átti frábæra tónleika á Airwaves hátíðinni gaf okkur einn helsta partýslagara ársins með Shutdown.
6) Multi Love – Unknown Mortal Orchestra
Titillag þriðju breiðskífu Unknown Mortal Orchestra fjallar um þrekant Ruban Nielson lagahöfundar og söngvara sveitarinnar. Öðruvísi ástarlag.
5) King Kunta – Kendrick Lamar
Í þeim ofgnótt af rjóma sem platan How To Pimp A Butterfly er trónir King Kunta á toppnum. Lagið sækir grimmt í grunn g-fönksins sem Dr. Dre og Snoop byggðu 20 árum fyrr og er þegar komið við hlið þeirra í sögu vesturstrandarrappsins.
4) Scud Books – Hudson Mohawke
Ofurpródúsantinn Hudson Mohawke hefur komið að mörgum spennandi verkefnum undanfarin ár t.d. Yeesus með Kanye og TNGH ásamt Lunice en hann heldur áfram að dæla út hágæða stöffi undir eigin nafni. Scud Books er rosalega stórt lag, þriggja og hálfs mínútna epík sem hægt er að dansa við eða bara loka augunum og njóta.
3) Cops Don’t Care Pt. II – Fred Thomas
Einfalt, stutt og hnitmiðað lag sem býr yfir heilmikilli vídd sem erfitt er að útskýra. Kærulaust og sannfærandi.
2) Gosh – Jamie xx
Jamie xx vex stöðugt sem pródúsant og lagið Gosh er hans besta fram til þessa. Byrjar á mínímalískum garage takti áður en bassa er bætt við og draugalegu raddsampli. En svo mætir synþesæser á svæðið og fer með hlustendur um ókannaðar vetrarbrautir. Lagið er eins og ferðalag um aðra heimsálfu og á stöðugri hreyfingu framávið.
1) Let It Happen – Tame Impala
Það kann að vera ófrumlegt að vera með sama listamanninn sem bæði plötu og lag ársins en í þetta skipti var ekki annað hægt. Upphafslag bestu plötu ársins, Currents, er anþem í öllum mögulegum skilningi þess orðs. Svona lag sem þú byrjar sjálfkrafa kýla upp í loftið í takt við of fær þig til að grípa um bestu vini þína og hoppa í hringi með þeim. Hamingjan pumpast út um hátalarana með hverri einustu bassatrommu, gítarlikki og synþahljóm, og söngur Kevins Parker flýgur yfir öllu saman eins og engill á LSD.
27) Titus Andronicus – The Most Lamentable Tragedy
26) Seven Davis Jr. – Universes
25) Earl Sweatshirt – I Don’t Like Shit, I Don’t Go Outside
24) Jessica Pratt – On Your Own Love Again
23) Thundercat – The Beyond / Where the Giants Roam
22) D.R.A.M. – Gahdamn!
21) Ezra Furman – Perpetual Motion People
20) Roisin Murphy – Hairless Toys
19) Blur – The Magic Whip
18) Empress Of – Me
17) Grimes – Art Angels
16) Deerhunter – Fading Frontier
15) Hudson Mohawke – Lantern
14) Waxahatchee – Ivy Tripp
13) Tobias Jesso Jr. – Goon
12) Sufjan Stevens – Carrie & Lowell
11) Jamie xx – In Colour
10) SOPHIE – PRODUCT
PC- music prinsinn og ólíkindatólið Sophie sendi þessa vöru sína í hillur plötubúða í lok síðasta mánaðar. Á plötunni Product má heyra átta smáskífur frá Sophie sem eru hver annarri hressari.
9) Fred Thomas – All Are Saved
All Saved er níunda sólóplata indie-kempunar Fred Thomas frá Michigan sem einnig er meðlimur í lo-fi bandinu Saturday Looks Good to Me. Platan er hans metnaðarfyllsta verk til þessa og það fyrsta til að fá drefingu á alþjóðavísu.
8) Unknown Mortal Orchestra – Multi-Love
Þriðja plata Unknown Mortal Orchestra byggir ofan á þéttan grunn af bítlalegu og léttsíkadelísku fönkrokki en bætir við nokkrum litum í hljómpalettuna. Útkoman er fjölbreyttari verk en áður, bæði þegar kemur að hljóðheim og uppbyggingum laga.
7) Kurt Vile – believe i’m going down…
Það gerist ekki afslappaðra og huggulegra gítarpoppið en hjá Kurt Vile, en samt er alltaf kaldhæðinn broddur í textagerðinni. believe i’m going down… er gríðarlega heilsteypt og góð plata þó hún nái ekki alveg sömu hæðum og hans síðasta, Walking on a pretty daze.
6) Courtney Barnett – Sometimes I Sit And Think, And Sometimes I Just Sit
Hin ástralska Courtney Barnett nær hér á undraverðan hátt að blása lífi í glóðir slakkerrokks 10. áratugarins. Á þessari plötu sem ber besta titil ársins syngur Barnett algjörlega áreynslulaust um tilgangsleysi hversdagslífsins á svo næman hátt að það er ekki hægt annað en að heillast með. Svo eru feikisterkar lagasmíðar alls ekki að skemma fyrir. Frábær plata.
5) Kelela – Hallucinogen
Tónlistarkonan Kelela fylgdi á eftir mixtape-inu Cut 4 Me frá árinu 2013 með þessari silkimjúku ep plötu sem nær hápunkti sínum í laginu Rewind. Á plötunni naut hún meðal annars aðstoðar upptökustjórans Arca sem gefur henni skemmtilegan framtíðarblæ.
4) Kendrick Lamar – To Pimp A Butterfly
Kendrick Lamar tókst að standa undir nánast óbærilegum væntingum sem skapast höfðu eftir good kid m.A.A.d. city, með hinni óheyrilega metnaðarfullu og fjölbreyttu To Pimp A Butterfly. Á skífunni úir og grúir af frábærum pródúsöntum og heyra má áhrif frá jassi, slamljóðum og G og P-fönki. En yfir öllu því gnæfir rödd Kendrick og flæðir yfir alla bakka eins og Amazon. To Pimp A Butterfly er nýkomin út en manni finnst hún strax vera orðin hluti af kanónunni í vesturstrandarrappi.
3) D.K. – Love On Delivery
Love Delivery erseyðandi og stöðug stuttskífa frá franska tónlistarmanninum D.K. Fullkomin á ströndina.
2) Rival Consoles – Howl
Breski raftónlistarmaðurinn Ryan Lee West, sem gefur út tónlist undir nafninu Rival Consoles, sendi frá sér lifandi raftóna í október á plötunni Howl sem minna á köflum á bestu verk tónlistarmanna á borð við Jon Hopkins og Aphex Twin.
1) Tame Impala – Currents
Hinn stjarnfræðilega hæfileikaríki Kevin Parker virðist ófær um að stíga feilspor og Tame Impala er á góðri leið með að verða Flaming Lips sinnar kynslóðar. Tame Impala taka 60’s síkadelíuna sína alvarlega og andi og fagurfræði hennar skín í gegn í öllum verkum sveitarinnar, ekki síst í stórkostlegum myndböndum og myndefni. Á þessari þriðju og jafnframt bestu plötu sveitarinnar fer minna fyrir gíturum en þeim mun meira er um útúrspeisaða hljóðgervla og trommuheila. Opnunarlagið Let It Happen er eitt allra sterkasta lag ársins og platan sem á eftir fer er löðrandi í grípandi viðlögum en en á sama tíma sprúðlandi í hugvíkkandi tilraunastarfsemi. Straumarnir á þessari plötu eru þungir og eiga eftir að fleyta Tame Impala langt. Bravó.
Austfyrski raftónlistarmaðurinn Good Moon Deer gaf sína fyrstu breiðskífu út ókeypis á netinu fyrri part árs. En platan er langt frá því að vera verðlaus, heldur mjög hugvitsamlega gert bútasaumsteppi sampla úr ýmsum áttum. Tempóið er flöktandi og síbreytilegt, hljóðbútar eru klipptir í agnarsmáar agnir og endurraðað, og þegar best lætur minnir Dot á taktmeistara á borð við Prefuse 73.
9) Lord Pusswhip – Lord Pusswhip Is Wack
Beitt og beinskeytt breiðskífa Lord Pusswhip. Pönkað hip-hop þar sem Lordarinn leiðir saman fjöldan allan af hæfileikafólki og útkoman er eins og ekkert annað sem er að gerast í íslenskri tónlist í auknablikinu.
8) Helgi Valur – Notes from the Underground
Notes from the Underground er ferðalag Helga Vals Ásgeirssonar til heljar og til baka. Platan sem var samin í geðrofi – niðurtúr í Berlín og í bata í Reykjavík fangar orku manns sem er á krossgötum. Falleg breiðskífa sem nær hápunkti sínum í hinu epíska lagi Love, Love, Love, Love.
7) Singapore Sling – Psych fuck
Sling hafa alltaf verið fánaberar íslensks innisólgleraugnarokks og ákveðinn fasti í tónlistarsenunni. Sama hvort að krútt eða rapp eru helsta trendið þá stundina standa Singapore Sling alltaf til hliðar og halda sínu striki í níhílísku töffararokkinu. Psych Fuck er þó jafnvel harðari og myrkari heldur en þeirra fyrri verk og er þá mikið sagt. Stundum er söngurinn hlaðinn svo mikilli bjögun að það hljómar eins og Henrik leigi stúdíótíma af satan.
6) Markús & The Diversion Sessions – The Truth the Love the Life
Biðin eftir þessari breiðskífu hefur verið löng og ströng en útkoman svíkur ekki neinn. Sterkir og skemmtilegir textar, létt kærulaus Pavement flutningur með smá Megas inn á milli.
5) Mr Silla – Mr Silla
Fyrsta plata tónlistarkonunar Sigurlaugar Gísladóttur eða Mr.Silla kom út í október 2015. Þrátt fyrir það hefur Sigurlaug verið áberandi í íslenskri tónlist í rúman áratug m.a. sem meðlimur hljómsveitarinnar múm. Platan sem heitir einfaldlega Mr.Silla er í senn einstök og angurvær sem oft fer ekki saman.
4)Gísli Pálmi – Gísli Pálmi
Gísli Pálmi sprakk í loft upp í vor þegar hans fyrsta breiðskífa sem er samnefnd honum kom loksins út. Allir hip hop unnendur landsins og unglingar í efra Breiðholti misstu líkamsvessa af gleði og heyrst hefur að vinna hafi lagst af í Plain Vanilla í þrjá daga eftir útkomu gripsins. Og skyldi engan undra því hér er um að ræða einu bestu hip hop plötu sem komið hefur út á Íslandi. Bara bítin eru hátækni framtíðarmúsík í efsta klassa og Gísli Pálmi er frábær rappari sem hefur byggt upp karakter og söguheim sem eru algjörlega hans eigin. Hækkum bassann og gefum í botn.
3) Vaginaboys – Icelandick
Vaginaboys eru óvæntasta uppgötvun ársins í íslensku tónlistarlífi. 80’s elektró R’n’B með átótúnuðum söng og íslenskum textum sem þræða einstigi milli væmni og klámfengni. Þeirra bestu hliðar skína í gegn á stuttskífunni Icelandick sem kom út í lok árs. Við kaupum þetta í heildsölu og fáum ekki nóg!
2) Pink Street Boys – Hits#1
Annað árið í röð eiga Pink Street Boys næst bestu plötu ársins hjá Straumi. Allir þeir sem hafa séð bandið á tónleikum vita hversu krafturinn er mikill hjá þessu einstaka bandi. Á plötunni ná þeir að fanga þennan kraft og gott betur.
1) Tonik Ensemble – Snapshots
Snapshots er geysilega metnaðarfullt verk þar sem nostrað er við hvert einasta smáatriði. Hér er allt útpælt: frá uppbyggingu laga og plötunnar sem heild niður í smáhljóð sem heyrist í byrjun eins lags og svo aldrei aftur. Það er þykkt og sterkt heildarsánd yfir plötunni sem er bæði angurvært og melankólískt á sama tíma. Tonik Ensemble er kominn í fremstu röð íslenskra raftónlistarsveita og Snapshots er fagleg og fullorðins en samt með risastóra sál sem skín í gegnum alla plötuna.
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, voru afhent í áttunda sinn í dag. Líkt og undanfarin ár voru sex plötur sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri plötuútgáfu á árinu verðlaunaðar.
Kraumsverðlaununum og Kraumslistanum, 21 platna úrvalslista verðlaunanna sem þeim fylgja, er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að verðlauna þær sex hljómplötur sem hljóta verðlaunin – og jafnframt að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild sinni. Kraumslistinn er 20 platna úrvalslisti verðlaunanna sem birtur er í byrjun desember. Dómnefnd Kraumsverðlaunanna velur síðan og verðlaunar sérstaklega sex hljómplötur af þeim lista er hljóta sjálf Kraumsverðlaunin.
Kraumsverðlaunin 2015 hljóta
asdfhg fyrir Steingervingur Dj flugvél og geimskip fyrir Nótt á hafsbotni
Mr Silla fyrir Mr Silla
Misþyrming fyrir Söngvar elds og óreiðu Teitur Magnússon fyrir 27
Tonik Ensemble fyrir Snapshots
KRAUMSLISTINN – ÚRVALSLISTI KRAUMSVERÐLAUNANNA
Þegar hefur verið tilkynnt um úrvalslista Kraumsverðlaunanna í ár, Kraumslistann, en það var gert á degi íslenskrar tónlistar þann 1. desember:
asdfgh – Steingervingur
Dj flugvél og geimskip – Nótt á hafsbotni
Dulvitund – Lífsins þungu spor
Fufanu – A Few More Days To Go
Gísli Pálmi – Gísli Pálmi
Gunnar Jónsson Collider – Apeshedder
Jón Ólafsson & Futuregrapher – Eitt
Kristín Anna Valtýsdóttir – Howl
Lord Pusswhip – Lord Pusswhip is wack
Misþyrming – Söngvar elds og óreiðu
Mr Silla – Mr Silla
Muck – Your Joyous Future
Myrra Rós – One Amongst Others
Nordic Affect – Clockworking
Ozy – Distant Present
President Bongo – Serengeti
Sóley – Ask The Deep
Teitur Magnússon – 27
Tonik Ensemble – Snapshots
TSS – Meaningless Songs
Vaginaboys – Icelandick—————————————————————————-UM KRAUMSVERÐLAUNIN
Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Allar íslenskar plötur sem komið hafa út á árinu eiga möguleika á að komast á Kraumslistann og hreppa Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og/eða vínyl, sem og útgáfur á netinu. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar tónistarlistamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka enda er tónlist góð og sígild jólagjöf.
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. Kraumur mun styðja við verðlaunaplöturnar og reyna auka möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum af tónlistarfólkinu eða útgefendum þeirra og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans, m.a. í samstarfi við aðila og tengiliði hérlendis. —————————————————————————- DÓMNEFND Kraumsverðlaunin eru valin af sextán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist. Dómnefndina skipa: Árni Matthíasson (formaður), Alexandra Kjeld, Arndís Björk Ásgeirsdóttir, Arnar Eggert Thoroddsen, Andrea Jónsdóttir, Benedikt Reynisson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, María Lilja Þrastardóttir, Matthías Már Magnússon, Ólafur Páll Gunnarsson, Óli Dóri og Trausti Júlíusson.Dómnefnd Kraumsverðlaunanna hefur hlustað á hátt í annað hundrað hljómplatna við val sitt á Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum 2015.