Í Straumi í kvöld kíkir hljómsveitin Ex.girls í heimsókn og segir okkur frá fyrstu plötu sveitarinnar Verk sem kom út á dögunum. Auk þess verða spiluð ný lög frá George Riley, Kanye West, Thoracius Appotite og fleirum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 22:00 á X-inu 977.
Í Straumi í kvöld heyrum við nýtt efni frá russian.girls & Bngrboy, Kraftgalla, Totally Enormous Extinct Dinosaurs, Alex G, Blood Orange og öðrum fleiri listamönnum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 22:00 á X-inu 977.
1) Phoenix – Tonight featuring Ezra Koenig
2) Through The Floor – Totally Enormous Extinct Dinosaurs
Í Straumi í kvöld verður fjallað um nýtt efni frá FKA Twigs, Aldous Harding, russian.girls, Bonobo og mörgum fleirum. Þátturinn sem er í umsjón Óla Dóra er á dagskrá á X-inu 977 klukkan 22:00.
1) Ride The Dragon – FKA Twigs
2) Which Way (ft. dystopia) – FKA Twigs
3) Lawn – Aldous Harding
4) Things Will Be Fine – Metronomy
5) Hundruð í hættunni – russian.girls
6) Maximum Emergency – Berndsen
7) Black Hot Soup (DJ Shadow remxi) – King Gizzard & The Lizard Wizard
Fyrsti Straumur ársins 2021 er á dagskrá X-ins 977 klukkan 23:00 í kvöld. Óli Dóri fer yfir nýja tónlist frá Hermigervil, Four Tet, russian.girls, Darkside, Burial og fleirum.
1) Está na Hora – Hermigervill & Villi Neto
2) O Outro Lado – Hermigervill
3) Parallel 2 – Four Tet
4) Parallel 4 – Four Tet
5) The Divine Chord (feat. MGMT, Johnny Marr) – The Avalanches
17. Until We Meet Again (Applescal Remix) – Tonik Ensemble
16. Cut – russian.girls
15. Mánadans – Kælan Mikla
14. Vinur vina minna – Teitur Magnússon
13. Absolute Garbage – Singapore Sling
12. Strange Loop – Sykur
11. Venter (Evian Christ remix) – Ben Frost
10. Steinunn – Boogie Trouble
Diskóið er eins og rottur og kakkalakkar, það mun aldrei deyja út, en þegar erfðaefnið er eins gott og Boogie Trouble eru allar líkur á því að það auki við kyn sitt. Eftirvæntingin eftir fyrstu breiðskífu Boogie Trouble er orðin umtalsverð og ekki minnkaði hún í vor þegar lagið Steinunn kom út. Fyrstu bassanóturnar framkalla strax kippi í líkamanum sem aukast þegar wah-wah gítarinn bætist við og í viðlaginu ætti allur líkaminn að vera kominn á mikla hreyfingu. Steinunn beyglar munninn því hún er að fara beinustu leið á ball.
9. Expanding – Páll Ivan frá Eiðum
Páll Ívan frá Eiðum stimplaði sig rækilega inn á árinu með þeim drungalega rafgjörningi sem lagið Expanding er. Hikstandi bassi, stafrænir skruðningar og draugaleg röddin er uppistaðan í þessari rafrænu hryllingsvögguvísu, og myndbandið er eitt það besta sem kom á árinu.
8. Distant Lover – Myndra
Firnasterkt indípopp með óaðfinnanlegum hljómi, grípandi viðlagi, singalong-kafla og óvenjulegum ryðma.
7. Evel Knievel – Pink Street Boys
Evel Knievel er eins og tónlistarlegt ígildi ryðgaðs hnífs sem er stungið í síðuna á þér og snúið og juggað í hringi og fram og til baka. Ekki tónlist til að slást við heldur tónlist sem slæst við þig. Rokk sem veður inn á skítugum strigaskónum og sparkar í rassa, punga, píkur og bara allt sem verður á vegi þess. Ekki ferskur andblær heldur sterk andremma sem fyllir upp í vit smáborgaralegrar fagurfræði og skilur eftir sig slóð eyðileggingar, tómra ódýrra bjórdósa og sígarettustubba.
6. The End – Fm Belfast
Gleðisveit landsins kemur með enn einn elektró-smellinn sem gætti brætt hjörtu allra hörðustu bölsýnismanna. Því FM Belfast eru vinir þeirra líka.
5. Ever Ending Never – M-band
Jon Hopkins hittir Gus Gus á bar í Berlín, þeir skella sér á Berghain og enda svo í eftirpartýi hjá Caribou snemma morguns þar sem sólin skín í gegnum gluggatjöldin. Svona kvöld sem þú vildir óska að myndi aldrei enda. Fljótandi tekknó sem seytlar jafnt inn í undirmeðvitundina og blóðrásina.
4. Flýja – Grísalappalísa
Á síðari plötu Grísalappalísu, Rökréttu Framhaldi, stækkuðu þeir út hljóðheim sinn og hvergi heyrðist það betur en í því stórbrotna ferðalagi sem lagið Flýja er. Hyldjúp ballaða sem hljómar á köflum eins og Lou Reed, Bob Dylan eða Serge Gainsbourg með epískri strengjaútsetningu sem á í samtali við lagið frekar en bara að fylgja því.
3. Crossfade – Gusgus
Crossfade er það sterkt lag að við mundum eftir því eftir tónleika á Sónar í febrúar 2013, alveg þangað til það kom loksins út rúmlega ári síðar í apríl á þessu ári. En biðin var vel þess virði, hljómurinn vélrænn en samt þokkafullur og textinn ljúfsár óður til upphafsára danstónlistarinnar í bland við kynferðislega undirtóna. Dökk og kynþokkafull rödd Daníels Ágúst bergmálar út í eilífðina í versunum og bjartur barítónn Högna í viðlaginu er fullkomið mótvægi.
2. Fuck With Someone Else – Gangly
Íslenskt svar við FKA Twigs, framúrstefnulegt Trip Hop með bragðaref af stafrænum, hliðrænum og lífrænum hljóðum og röddum sem eru skældar og teigðar í ótal áttir. Algjör andstæða við fyrsta sætið á listanum, frámunalega móðins, kosmópólítan og erlendis þar sem kúlið er meitlað í stein.
1. París Norðursins – Prins Póló
Það kom aldrei neitt annað til greina. Grófur synþabassinn, dúndrandi bassatromman og textinn eins og Hrafns Gunnlaugs-leg greining á stemmningu og helstu persónum í erkitýpísku íslensku sjávarþorpi. Knappt, hnyttið, beint í mjaðmirnar og ör í hjarta þjóðarsálar. Hljómar eins og diskókúla í síldarbrennslu eða reif í frystihúsi, eins íslenskt og það gerist. Meira að segja ofspilunin hefur ekki bitið á því. Prins Póló á Bessastaði!
Fyrstu tónleikar í tónleikaröðinni „Kvöldstund með Vebeth“ verða haldnir föstudaginn 14. mars á Café Ray Liotta á Hverfisgötu. Vebeth er hreyfing tónlistar- og myndlistafólks sem aðhyllist svipaða fagurfræði og hafa m.a gefið út plötur undir merkjum hópsins. Á þessum fyrstu tónleikum koma fram hljómsveitirnar Russian.girls, Pink Street Boys og Two Step Horror en þær tvær fyrrnefndu hafa nýverið gengið til liðs við Vebeth. Tónleikarnir eru opnir öllum sem náð hafa áfengiskaupaaldri og aðgangseyrir er algjörlega ókeypis.
Fyrsta atriði á svið er Russian.girls, verkefni Guðlaugs Halldórs Einarssonar úr Captain Fufanu, sem spilar tilraunakennda og rafskotna skynvillutónlist. Þá munu Pink Street Boys spila hávaðarokk undir áhrifum sjöunda og áttunda áratugarins. Hljómsveitin Two Step Horror endar svo kvöldið en hljómsveitin var stofnuð af Þórði Grímssyni og Önnu Margrét Björnsson fyrir um fimm árum síðan. Nýlega bættust þrír meðlimir við hljómsveitina, þeir Hafsteinn Michael Guðmundsson, Kolbeinn Soffíuson og Baldvin Dungal, en sveitin mun spila á tónlistarhátíðinni Berlin Psych Fest sem á sér stað í apríl þar sem þau munu meðal annars hita upp fyrir bresku „cult“ sveitina The Telescopes. Two Step Horror gefa út sína þriðju breiðskífu nú í vor en hún nefnist Nyctophlia.
Kjallarinn á Ray Liotta opnar klukkan 21:00 og klukkutíma síðar hefur Russian.Girls leik, Pink Street Boys fara á svið 23:00 og Two Step Horror slá svo botninn í dagskránna á miðnætti. Þá mun Straumur (Óli Dóri) sjá um skífuþeytingar á milli atriða og einnig að tónleikunum loknum inn í nóttina. Þetta verður einungis fyrsta kvöldið af mörgum en aðrir tónlistarmenn sem tilheyra Vebeth hópnum eru Singapore Sling, Dream Central Station, Rafsteinn, The Go-Go Darkness, The Third Sound, The Blanket of Death, The Dead Skeletons, The Meek ( US), DJ-Musician, Hank & Tank og Evil Madness.