Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/straum.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 56 STRAUMUR – Page 145
Samkvæmt tímatali Maya indjána verður heimsendir á morgun. Í tilefni þess settum við saman lagalista með uppáhalds heimsenda lögunum okkar. Hlaðið honum niður hér fyrir neðan og hlustið á meðan að heimurinn endar.
Kraumslistinn 2012, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, var kynntur í gær. Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, tilkynnti niðurstöðu um val verðlaunaplatna sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins. Afhending verðlaunanna fór fram í húsnæði Kraums tónlistarsjóðs að Vonarstræti 4b að viðstöddum hópi gesta.
Tuttugu og einn tók þátt Í dómnefnd Kraumslistans 2012 en þar sátu:
Alexandra Kjeld, Andrea Jónsdóttir, Anna Andersen, Arnar Eggert Thoroddsen, Arndís Björk Ásgeirsdóttir, Árni Matthíasson, Ása Dýradóttir, Benedikt Reynisson, , Egill Harðarson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Guðni Tómasson, Haukur S. Magnússon, Helena Þrastardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Höskuldur Daði Magnússon, Kamilla Ingibergsdóttir, Ólafur Halldór Ólafsson, Ólafur Páll Gunnarsson, Sólrún Sumarliðadóttir, og Trausti Júlíusson.
Hljómsveitin The xx sendi í gær frá sér ábreiðu af hinu klassíska jólalagi Wham – Last Christmas.The xx tóku lagið upp í upptökuveri BBC Radio 1 á dögunum. Hlustið á þessa fallegu ábreiðu hér fyrir neðan.
Hljómsveitin The Shins sendi frá sér sína fjórðu plötu á árinu sem margir höfðu beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Fínasta plata hér á ferð þó að hún sé kannski engin Chutes TooNarrow eða Oh, Inverted World en þær eru það nú fæstar.
29) A.C. Newman – Shut Down The Streets
Söngvari The New Pornographers hér með sína þriðju sólóplötu sem gefur fyrstu tveimur lítið eftir í gæðum.
28) Purity Ring – Shrines
Fyrsta plata kanadísku hljómsveitarinnar Purity Ring var ekki alveg jafn sterk og fyrstu smáskífurnar gáfu til kynna. Frábær frumraun engu að síður.
27) DIIV – Oshin
Brooklyn hljómsveitin DIIV sem hét upphaflega Dive var stofnuð árið 2011 sem sólóverkefni gítarleikara Beach Fossils – Zachary Cole Smith. Fyrsta stóra plata hljómsveitarinnar Oshin kom út í sumar. Platan er full af skemmtilega útpældu gítarrokki af bestu gerð.
26) Cloud Nothings – Attack on Memory
Heiðarlegt gítarrokk af bestu gerð úr smiðju hins unga Dylan Baldi frá Cleveland. Attack on Memory er þriðja plata kappans og var hún tekin upp af upptökustjóranum goðsagnakennda Steve Albini sem spilaði víst Scrabble á símanum sínum á meðan á upptökum stóð.
25) Matthew Dear – Beams
Þann 27. ágúst gaf bandaríski raftónlistarmaðurinn Matthew Dear út sína fimmtu plötu – Beams. Platan fylgdi á eftir hinni frábæru Black City sem kom út árið 2010. Dear hefur látið hafa eftir sér að hann sé margbrotin persóna og að útkoman á plötunni sé eftir því og hann blandi saman hinum ýmsu stefnum á Beams.
24) The Magnetic Fields – Love at the Bottom of the Sea
Hljómsveitin The Magnetic Fields snéri til baka í syntha rokkið sem einkenndi hljóm sveitarinnar á 10. áratugnum.
23) Wild Nothing – Nocturne
Tónlistarmaðurinn Jack Tatum sem gefur út tónlist undir nafninu Wild Nothing, fylgdi á eftir hinni frábæru plötu Gemini frá árinu 2010 með sinni annari plötu Nocturne í ágúst. Hinn draumkennda hljóm Gemini er einnig að finna á Nocturne.
22) Beach House – Bloom
Fjórða plata bandarísku draumpopp hljómsveitarinnar Beach House – Bloom þykir ekki mikil stefnubreyting fyrir sveitina frá plötunni Teen Dream og er það einna helst það sem gagnrýnendur hafa út á hana að setja, en hún hefur hlotið samskonar lof og sú plata. Þess ber að geta að sami upptökustjórinn, Chris Coady, sá um upptökur á báðum plötunum.
21) Lotus Plaza – Spooky Action at a Distance
Gítarleikari Deerhunter Lockett Pundt gaf út sína aðra sólóplötu á árinu. Platan er gríðarlega metnaðarfullt verk sem sannar að Bradford Cox er ekki eini frábæri lagahöfundurinn í Deerhunter.
20) Chromatics – Kill For Love
Fjórða plata elektró hljómsveitarinnar Chromatics frá Porland kom út 26. mars. Platan sem fékk góða dóma hvarvetna þótti gríðarlega falleg og var borin saman við verk Joy Division og New Order. Í maí gaf hljómsveitin útgáfu af plötunni án tromma á netinu.
19) Phédre – Phédre
Hljómsveitin Phédre frá Kanada byrjaði sem hliðarverkefni þeirra Daniel Lee og April Aliermo úr Hooded Fang og Airick Woodhead sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Doldrums. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu Phédre í febrúar á þessu ári. Platan er í senn hrá og gríðarlega fljölbreytt.
18) Django Django – Django Django
Skoska hljómsveitin Django Django gaf út sína fyrstu plötu snemma á þessu ári. Á plötunni mætast hinar ýmsu stefnur í bragðmikilli súpu – sækadelía, þjóðlagatónlist og synthapopp.
Viðtal sem við áttum við Django Django:
8. air 5 2 django
17) Jack White – Blunderbuss
Jack White gaf út sína fyrstu sólóplötu á þessu ári. Platan er beint framhald af því sem White gerði með sínu gamla bandi The White Stripes – bara aðeins þéttari trommur.
16) Ariel Pink’s Haunted Graffiti – Mature Themes
Önnur plata sveitarinnar Haunted Graffiti með Ariel Pink fremstan í flokki er með svipuðu sniði og sú fyrri. Hljómur hennar er jafnvel enn slípaðri en á Before Today sem kom út árið 2010 og vakti mikla lukku. Platan er þó ekki jafn heilsteypt verk og sú plata.
Útvarpspistill um Ariel Pink:
9. Ariel Pink's Haunted Graffiti útvarpspistill
15) The Walkmen – Heaven
Hljómsveitin The Walkmen er löngu orðin að hornsteini í bandarísku indie-rokki. Sveitin sendi frá sína 7. plötu – Heaven í vor og sagðist söngvari hennar Hamilton Leithauser vera undir miklum áhrfum frá Frank Sinatra á plötunni.
14) Poolside – Pacific Standard Time
Los Angeles dúóið Poolside sendi loksins frá sér sína fyrstu plötu á árinu. Á plötunni sem er 16 laga, er fullt af metnaðarfullu elektró poppi sem þeir hafa sjálfir nefnt sem neðarsjávar raftónlist.
13) Jessie Ware – Devotion
Söngkonan Jessie Ware fékk verðskuldað lof á árinu fyrir sína fyrstu plötu Devotion sem kom út í ágúst. Ware vakti fyrst athygli þegar hún söng með SBTRKT.
12) M. Ward – A Wasteland Companion
A Wasteland Companion er sjöunda plata M. Ward. Platan kom út í byrjun apríl og fylgir á eftir plötunni Hold Time frá árinu 2009. Á þessari plötu er Ward mun rólegri með einvala lið tónlistarmanna með sér.
11) Lindstrøm – Smalhans
Í síðasta mánuði sendi norski raftónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Hans-Peter Lindstrøm frá sér plötuna Smalhans sem er önnur plata hans á þessu ári. Lindstrøm gaf fyrr á árinu út plötuna Six Cups of Rebel sem þótti tilraunakennd og ólík því sem hann er frægastur fyrir. Smalhans er algjör andstæða.
10) Crystal Castles – (III)
Elektró pönkararnir í Crystal Castles gáfu út þriðju sjálftitiluðu plötuna nýlega. Á plötunni gefa þau fyrri verkum ekkert eftir.
9) Tame Impala – Lonerism
Áströlsku sýru rokkararnir í Tame Impala gáfu út sína aðra plötu þann 5. október. Platan sem heitir Lonerism fylgdi á eftir hinni frábæru Innerspeaker sem kom út árið 2010. Líkt og með þá plötu var Lonerism tekin upp af Kevin Parker söngvara og lagahöfund sveitarinnar. Parker byrjaði að semja lögin á plötunni næstum um leið og frumburðurinn kom út og var hún að mestu samin og tekin upp á flakki um heiminn á meðan að hljómsveitin kynnti Innerspeaker.
8) Woods – Bend Beyond
Freak-folk hljómsveitin Woods sendi frá sér plötuna Bend Beyond þann 18. september. Platan er sterkasta Woods platan fram að þessu og er full af vönduðu þjóðlagapoppi með nútíma áherslum.
7) Grimes – Visions
Grimes hefur tekið við krúnunni af The Arcade Fire sem heitasta útflutningsvara Montreal. Frá því að platan Visions kom út í janúar hafa gagrýnendur keppst við að ausa hana lofi enda um frábæra plötu að ræða.
6) Dirty Projectors – Swing Lo Magellan
Dirty Projectors hefur þróast á skömmum tíma úr því að vera skúffuverkefni eins manns yfir í eina af metnaðarfyllstu tilraunarokkhljómsveitum samtímans. Í sumar gaf hljómsveitin út sína sjöttu plötu Swing Lo Magellan.David Longstreth söngvari og lagasmiður sveitarinnar sá um allar upptökur á plötunni, sem stóðu yfir í heilt ár. Hann samdi yfir 40 lög fyrir hana þótt aðeins 12 þeirra hafi ratað á endanlega útgáfu hennar.
Útvarpspistill um sögu Dirty Projectors:
10. Útvarpspistill um Dirty Projectors
Viðtal við Amber Coffman úrDirty Projectors
11. Air 5 4 dirty
5) Totally Enormous Extinct Dinosaurs – Trouble
Orlando Higginbottom sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Totally Enormous Extinct Dinosaurs gaf út sína fyrstu stóru plötu Trouble 11. júní. Um er að ræða metnaðarfyllstu dansplötu ársins 2012.
4) Japandroids – Celebration Rock
Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu – Post Nothing snemma árs 2009 og var hún plata ársins hér í Straumi. Hljómsveitin fylgdi eftir með plötuna Celebration Rock í sumar þar sem hún blandar saman klassísku rokki við indie rokk 9. áratugarins.
Viðtal straum.is við hljómsveitina Japandroids þegar hún spilaði á tónleikum í Reykjavík síðasta sumar.
Útvarpsviðtal við Brian King söngvara Japandroids:
12. Japandroids viðtal
3) First Aid Kit – The Lion’s Roar
Sænsku systurnar úr First Aid Kit sigruðu hjörtu landa sinna með þessari frábæru plötu sem kom út í upphafi ársins. The Lion’s Roar er önnur plata First Aid Kit og um upptökur sá Mike Mogis úr Bright Eyes. Systurnar sýndu gríðarlega miklar framfarir í lagasmíðum á plötunni.
2) Frank Ocean – Channel Orange
Tónlistarmaðurinn Christopher Francis Ocean gaf út sína fyrstu sólóplötu í júlí. Ocean sem áður samdi tónlist fyrir listamenn á borð við Brandy, Justin Bieber og John Legend undir dulnefni varð meðlimur OFWGKTA árið 2010 og fór fljólega eftir það að vekja athygli fyrir eigið efni.
1) Advance Base – A Shut-In’s Prayer
Fyrsta plata tónlistarmannsins Owen Ashworth undir nafninu Advance Base er plata ársins 2012 í Straumi. Ashworth gaf áður út undir nafninu Casiotone for Painfully Alone en hann gaf út plötuna A Shut-In’s Prayer snemma í vor. Heildsteypt plata sem rennur vel í gegn.
Íslenska hljómsveitin Sin Fang með Sindra Má Sigfússyni fremstan í flokki sendi um helgina frá sér fyrsta lagið af plötunni Flowers sem kemur út 1. febrúar á næsta ári. Lagið heitir Young Boys og er eitt það besta sem sveitin hefur sent frá sér. Platan sem er þriðja plata Sin Fang var tekin upp af Alex Somers sem áður hefur unnið með Sigur Rós og Jónsa og sá síðast um upptökustjórn á plötunni Twosomeness með Pascal Pinion. Hægt er að hlaða laginu niður hér fyrir neðan.
Seinni árslistaþáttur Straums yfir 30 bestu plötur ársins er á dagskrá á X-inu 977 klukkan 23:00 í kvöld. Farið verður yfir plöturnar sem setja í 15. til 1. sæti í ár. Listinn birtist svo hér í heild sinni strax og þættinum líkur. Hér fyrir neðan má sjá fyrri hluta listans sem farið var yfir í síðustu viku.
16) Ariel Pink’s Haunted Graffiti – Mature Themes
17) Jack White – Blunderbuss
18) Django Django – Django Django
19) Phédre – Phédre
20) Chromatics – Kill For Love
21) Lotus Plaza – Spooky Action at a Distance
22) Beach House – Bloom
23) Wild Nothing – Nocturne
24) The Magnetic Fields – Love at the Bottom of the Sea
Sufjan Stevens finnst ekkert leiðinlegt að gefa út jólalög, fyrir skömmu gaf hann út 5 diska jólalagasafn – Silver & Gold: Songs for Christmas og fyrr í þessari viku gaf hann út jólalaga “mixtape” með lögum af safninu. Þetta “mixtape” nefnist Chopped and Scrooged og fékk hann nokkra vel valda rappara til liðs við sig til að flytja lögin í nýjum búningi. Fyrsta lagið á Chooped and Scrooged er með Heems sem var áður í Das Racist, lagið heitir The Child With the Star On His Head og um upptökustjórn sá John Dieterich úr hljómsveitinni Deerhoof. Lagið er jólalag dagsins hér á straum.is. Hlustið á allt “mixtape-ið” hér fyrir neðan.
Tónlistarmaðurinn Nathan Williams sem gefur út undir nafninu Wavves sendi frá sér nýtt lag á dögunum. Lagið sem heitir Sail to the Sun verður á væntanlegri Wavves plötu sem kemur út í vor. Síðasta plata Wavves King of the beach kom út árið 2010.
Indí-popp hljómsveitin Los Campesinos! frá Wales gaf í gær aðdáendum sínum snemmbúna jólagjöf í formi jólalags. A Doe To A Deer er annað jólalagið sem hljómsveitin sendir frá sér en lagið Kindle A Flame In Her Heart kom út fyrir jólin 2010.
1. MP3 A Doe To A Deer
2. MP3 A Doe To A Deer
I came two weeks before Christ,
not tender nor mild, from the womb I came a-wailing “silent night! “,
but I’ll give you something to believe in.
You’ll see three ships sailing in.
I’m a frail evergreen, be a bauble hanging off of me,
pine needles a’pricking at your bare feet.
I’ll be anything you want of me, carrot nosed encased in snow.
An angel teetering atop a tree, vomiting from vertigo.
If you’ll be mine for Christmas:
a doe to a deer.
I’ll be home for Christmas,
and home will be here.
I’m three sheets to the wind,
but the wind is a sleet, and this sheet ain’t one of snow to play beneath,
and my nose is red, from the whisky.
I’m Boxing Day game away.
Shirtless cherubs on the terrace, singing hymns, praying the saviour scores today,
and that he is one, but not the only.
If you’re looking for me, follow any star ’cause I will be around, no matter where you are.
I’m CCTV video late night on Christmas Eve,
window shopping in full Santa suit,
blind drunk on the high street. Never got a gift, gold, frankincense or myrrh and never would’ve cared if you could just have her.
I’m Christmas morning stumbling home up the cul-de-sac,
flanked by kids upon new bikes,
stabilising my walk back.
Öldungaráð Kraums hefur tilnefnt 20 plötur á Úrvalslista Kraums en í næstu viku kemur í ljós hvaða 5 – 6 plötur af þessum tuttugu munu skipa Kraumslistann 2012. Markmið Kraumslistans er að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með sérstöku tilliti til þeirra sem yngri eru. Viðurkenna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Framkvæmd Kraumslistans 2012 er með þeim hætti að níu manna dómnefnd útnefnir 20 plötur á Úrvalslista Kraums en við honum tekur svo 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur.
Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð fólki sem hefur mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.
Í Öldungaráði sem vann að forvalinu áttu sæti ásamt Árna Matthíassyni: Ása Dýradóttir, Benedikt Reynisson, Guðni Tómasson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Ólafur Halldór Ólafsson og Trausti Júlíusson.
Úrvalslisti Kraums 2012 – listinn er birtur í stafrófsröð: