Ástralska sýru-popp hljómsveitin Tame Impala sendi í kvöld frá sér fyrstu smáskífuna af væntanlegri plötu sinni – Lonerism sem kemur út þann 8. október næstkomandi. Sveitin hafði áður sent frá sér lagið Apocalypse Dreams af plötunni. Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.
Month: July 2012
Önnur plata Sudden Weather Change
Reykvíska hljómsveitin Sudden Weather Change gefur út sína aðra plötu – Sculpture þann 1. ágúst næstkomandi. Hljómsveitin sendi frá sér plötuna Stop! Handgrenade In The Name Of Crib-Death ‘nderstand? árið 2009 og stuttskífuna Varrior árið 2010. Hægt er að hlusta á lagið Blues af Sculpture hér fyrir neðan.
1. 07 Blues
Tónlistarsenan í Montreal
Greg Bouchard frá hinu virta tónlistar- og menningar bloggi www.midnightpoutine.ca, frá Montreal var gestur Straums í byrjun þessa mánaðar. Greg fræddi okkur um tónlistarsenuna í Montreal sem er blómleg um þessar mundir og bar hana saman við þá íslensku. Greg kom einnig til okkar í fyrrasumar og sagði okkur frá því hvernig senan hefur þróast á milli ára. Það sem bar hæðst þetta árið eru auknar vinsældir tónlistarkonunnar Grimes. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á viðtalið í ár og viðtalið frá því í fyrra, auk laga sem Greg mælti með frá tónlistarmönnum frá Montreal.
Crystal Castles snúa aftur
Elektró pönk hljómsveitin Crystal Castles sendi frá sér glænýtt lag rétt í þessu. Lagið verður á þriðju plötu hljómsveitarinnar sem kemur út seinna á þessu ári. Hægt er að hlaða laginu niður hér fyrir neðan.
School Of Seven Bells með Lil Wayne ábreiðu
Hljómsveitin School Of Seven Bells sendi á dögunum frá sér ábreiðu af laginu How To Love sem Lil Wayne gaf út í fyrra. Þriðja plata hljómsveitarinnar, Ghostory kom út í febrúar. Hægt er hlaða niður laginu hér fyrir neðan.
Miðasala á Dirty Beaches
Miðasala á tónleika kanadísku hljómsveitarinnar Dirty Beaches hefst á morgun á www.midi.is og www.harpa.is. Tónleikarnir fara fram í Kaldalóni í Hörpu þann 4. september næstkomandi og mun hljómsveitin Singapore Sling (ásamt Sparkle Poison) einnig koma fram. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröðinni Stop over series sem er samstarfsverkefni Kimi Records og Hörpu, og er studd af Icelandair, Reyka, Gogoyoko og Kex Hosteli. Hægt er að hlusta á lagið Lord Knows Best af plötu Dirty Beaches – Badlands frá því í fyrra hér fyrir neðan.
Nýtt efni frá Sebadoh
Hin goðsagnakennda indie hljómsveit Sebadoh sendi í dag frá sér fyrsta nýja efnið í 14 ár. Hljómsveitin gaf út The Secret EP nokkuð óvænt í dag og í fréttatilkynningu frá Lou Barlow söngvara og öðrum lagahöfundi hennar segir að lögin sé í svipuðum stíl og á plötunni Bubble & Scrape frá árinu 1993. Hljómsveitin hyggst svo gefa út stóra plötu á næsta ári. Fyrir neðan er hægt að hlusta á tvö lög af The Secret EP – I don’t mind og Keep the Boy Alive
Dan Snaith öðru nafni Caribou gefur út plötu
Dan Snaith, sem er best þekktur undir nafninu Caribou,mun gefa út plötuna JIAOLONG þann 9. október næstkomandi. Plötuna sendir hann frá sér undir nafninu Daphni, sem hann notar til að gefa út tónlist með elektrónískari áherslum. Þetta er þriðja nafnið sem Snaith notast við, en hann hóf feril sinn undir nafninu Manitoba. Hér fyrir neðan er myndband við fyrstu smáskífuna af plötunni, sem nefnist Ye Ye.
Heavenly Beat
Í dag kemur út platan Talent með Heavenly Beat. Um er að ræða fyrstu plötu, hliðarverkefnis bassaleikara Beach Fossils, John Peña. Þetta er annað hliðarverkefnið úr hópi Beach Fossils sem gefur út plötu á þessu ári en stutt er síðan gítarleikari hljómsveitarinnar Zachary Cole Smith gaf út plötu með hljómsveit sinni DIIV. Hægt er að hlusta á plötuna fyrir neðan.
Remix af nýjasta lagi The xx
Í síðustu viku sendi London sveitin The xx frá sér fyrsta lagið af annari plötu sinni Coexist, sem tónlistaráhugamenn hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Lagið heitir Angels og hefur nú verið endurhljóðblandað af Mirrors. Hægt er að hlusta á það hér fyrir neðan.