Ábreiða Summer Camp á Wham slagaranum Last Christmas er jólalag dagsins. Lagið koma út á safndiski Moshi Mosh útgáfunnar A Christmas Gift For You From Moshi Moshi í fyrra.
Ábreiða Summer Camp á Wham slagaranum Last Christmas er jólalag dagsins. Lagið koma út á safndiski Moshi Mosh útgáfunnar A Christmas Gift For You From Moshi Moshi í fyrra.
Fyrir jólin í fyrra breiddi tónlistarkonan Cat Power yfir hið klassíska jólalag Have yourself a merry little Christmas á afar fallegan hátt.
New York hljómsveitin Yeah Yeah Yeahs sendi óvænt frá sér jólalag fyrir jólin 2008. Lagið nefnist All I Want For Christmas og varð strax klassískt og minnir mikið á fyrsta efnið sem sveitin sendi frá sér í upphafi síðasta áratugar. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Hinn 21 gamli bandaríkjamaður Yoodoo Park, sem gefur út tónlist undir nafninu GRMLN, gaf út jólalagið Before December (You’re Alive) í byrjun mánaðarins.
Jólalag dagsins er nýleg ábreiða áströlsku hljómsveitarinnar DZ Deathrays á Mud laginu Lonely This Christmas sem kom út árið 1974.
Íslenski raftónlistarmaðurinn Árni Grétar öðru nafni Futuregrapher gaf rétt í þessu út jólalagið Jólasveinar 1 og 808 sem er jólalag dagsins í jóladagatali Straums.
Bandaríska hljómsveitin The Shins sendi frá sér ábreiðu af jólalagi Paul McCartney frá árinu 1979 Wonderful Christmastime fyrir jólin 2012. Lagið er að finna á safnplötunni Holidays Rule.
MP3:
Jólalag dagsins er Christmas Is A Coming af barnaplötu hins frábæra Huddie Leadbelly – Lead Belly Sings for Children. Myndbandið sem fylgir laginu er tekið úr jólamynd að nafninu Santa Claus frá árinu 1898. Þess má geta að Leadbelly var dæmdur í fangelsi fyrir morð og seinna fyrir morðtiltraun og lét Bob Dylan eitt sinn hafa það eftir sér að Leadbelly væri líklega eini fyrrverandi tugthúslimurinn sem sent hefði frá sér vinsæla barnaplötu.
Bandaríska bílskúrsrokk hljómsveitin The Sonics gaf út sína fyrstu plötu Here Are The Sonics árið 1965 sem átti eftir að verða gríðarlega áhrifamikil í gegnum tíðina. Þegar platan var endurútgefin árið 1999 var þremur jólalögum bætt við plötuna sem tekin voru upp um svipað leyti. Þar á meðal var lagið Santa Claus sem byggt er á laginu Father John eftir hljómsveitina The Premiers.
Reggae-tónlistarmaðurinn Jacob Miller sem fór fyrir hljómsveitinni Inner Circle gaf út jólaplötuna Natty Christmas tveim árum áður en hann lést árið 1978. Platan er oft nefnd þegar öðruvísi jólaplötur ber á góma en á henni er Miller í feikna raggae fíling. Jólalag dagsins er skemmtileg reggae útgáfa af We Wish You a Merry Christmas með Miller og félögum.