Reykvíski raftónlistarmaðurinn Anton Kaldal sem sent hefur frá sér tónlist í rúman áratug undir nafninu Tonik gaf í dag út fyrstu plötu sína sem Tonik Ensemble. Á plötunni sem nefnist Snapshots vinnur Anton með mörgum frábærum tónlistarmönnum sem skýrir helst þessa nafnabreytingu. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á nýjustu smáskífuna Imprints af þessari frábæru plötu.
Category: Fréttir
Straumur 9. febrúar 2015 – Sónar þáttur
Straumur í kvöld verður tileinkaður Sónar Reykjavík sem hefst í Hörpu á fimmtudaginn og stendur til laugardags. Óli Dóri fer yfir það helsta á hátíðinni í þættinum sem byrjar á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur Sónar Þáttar 9. febrúar 2015 by Straumur on Mixcloud
1) Everybody Knows – SBTRKT
2) Preben Goes To Acapulco (Prins Thomas remix) – Todd Terje
3) Scruff Box – Randomer
4) Sleep Sounds – Jamie xx
5) Slide Off – Súrefni
6) Bipp – Sophie
7) Snow In Newark – Ryan Hemsworth
8) Expanding – Páll Ívan frá Eiðum
9) Imprints – Tonik Ensemble
10) Yoshi City – Yung Lean
11) Cian’t Hear it – Elliphant
12) Aus – Nina Kraviz
13) Aaron – Paul Kalkbrenner
14) Swingin’ Party – Kindness
Tónleikar helgarinnar 5. – 8. febrúar 2015
Fimmtudagur 5. febrúar
Félagarnir Jo Berger Myhre, Magnús Trygvason Eliassen og Tumi Árnason verja kvöldinu saman í Mengi í frjálsum spuna. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Tónleikar með Teiti Magnússyni í Gym & Tonic á Kex Hostel. Teitur er annar aðallagahöfunda Obja Rasta og mun hann koma fram ásamt fullskipaðri hljómsveit. Miðaverð er 1500 kr. “Tuttugu og sjö” platan með Teiti á CD + miði á tónleika = 2500 kr.
In The Company Of Men, Ophidian I & Mannvirki á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 500 kr inn.
Föstudagur 6. febrúar
Oyama og Tilbury spila á Húrra Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1500 kr inn.
Krakkkbot heldur útgáfutónleika í styttugarði Listasafns Einars Jónssonar í tilefni að Safnanótt Vetrarhátíðar, en þar mun Krakkkbot flytja plötu sína Blak Musik í heild sinni. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:45.
Hjalti Þorkelsson og hljómsveit leika lög Hjalta á Café Rósenberg. Aðgangseyrir er 1000 kr og hefjast tónleikarnir klukkan 21:30.
Gyða Valtýsdóttir og Shahzad Ismaily koma fram í Mengi. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Laugardagur 7. febrúar
Oberdada von Brútal mætir til leiks íj Mengi með frumflutning á antí-músíkverkinu PNTGRMTN, en Harry Knuckles ætlar að hita upp fyrir hann og flytja nokkur tilbrigði við stefið hávaða. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Hip-hop hljómsveitin Cheddy Carter frumflytur nýtt efni fyrir gesti og gangandi á Kex Hostel. Tónlistarmaðurinn Vrong mun mýkja hljóðhimnur gesta frá kl. 21:00, áður en Cheddy Carter stígur á stokk. Aðgangur er ókeypis.
Sunnudagur 8. febrúar
Rafdúóið Mankan sem skipað er þeim Guðmundi Vigni Karlssyni og Tom Manoury koma fram á Lowercase kvöldi á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30 og það er frítt inn.
A & E Sounds safna fyrir útgáfu
Hljómsveitin A & E Sounds safnar nú fyrir útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu á Karolina Fund. A & E Sounds er samstarfsverkefni Þórðar Grímssonar og Kolbeins Soffíusonar og hafa þeir síðastliðna mánuði verið að leggja lokahönd á skífuna. Hugmyndin að henni kviknaði hjá Þórði vorið 2014 þegar hann stundaði nám við Weissensee listaháskólann í Berlín og samdi hann þar um 30 lög sem hann gaf út á Soundcloud.
Kolbeinn er nýútskrifaður úr hljóðtækni frá Stúdíó Sýrlandi og var umrædd plata lokaverkefni hans í því námi. Þórður útskrifast í vor úr grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og mun fyrir lokasýningu LHÍ hanna allt myndrænt útlit plötunnar sem verður í 500 prentuðum 180 gramma vínyl eintökum.
Meðal tónlistarmanna sem koma fram á plötunni eru organistinn Steinar Logi, kórinn Bartónar, trommarinn Orri Einarsson, píanóleikarinn Þóranna Dögg Björnsdóttir og söngkonan Jessica Meyer. Upptökurnar voru gerðar í Stúdíó Sýrlandi, Hallgrímskirkju og í hljóðveri þeirra Kolbeins og Þórðar á Skúlagötu. Söfnunin stendur til 6. apríl og geta þeir sem styrkja söfnunina pantað eintak af plötunni í forsölu.
Hér fyrir neðan má horfa á myndband við lagið Sunday Driver og kynningarstiklu fyrir plötuna.
Straumur 2. febrúar 2015
Í Straumi í kvöld verður flutt viðtal sem við áttum við Kindness sem kemur fram á Sónar Reykjavík seinna í þessum mánuði auk þess sem spilað verður efni frá Toro Y Moi Courtney Barnett, A Place To Bury Stranger, Computer Magic, Torres og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra frá 23:00 í kvöld á X-inu 977.
Straumur 2. febrúar 2015 by Straumur on Mixcloud
1) Doigsong – Kindness
2) To Die In L.A. – Lower Dens
3) Pedestrain at Best – Courtney Barnett
4) Cooking Up Something Good (demo) – Mac DeMarco
5) I’ll Be Back – Kindness
6) Swingin’ Party – Kindness
7) Ratcliff – Toro Y Moi
8) Lilly – Toro Y Moi
9) Run Baby Run – Toro Y Moi
10) Empyrean Abattoir – Of Montreal
11) What We Don’t See – A Place To Bury Stranger
12) Buried – Shlohmo
13) Shipwrecking – Computer Magic
14) Strange Hellos – Torres
Tónleikahelgin 29.-31. janúar
Fimmtudagur 29. janúar
Fertugasti Heiladans Möller Records verður fimmtudagskvöldið 29. janúar á Bravó. Fram koma listamennirnir Futuregrapher, Nuke Dukem og Bistro Boy en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa sent frá sér plötur nýlega. Í Nóvember sendi Futuregrapher frá sér plötuna Skynvera sem hlaut góðar viðtökur og var valin af Morgunblaðinu ein af plötum ársins. Nuke Dukem sendi frá sér plötuna Liberty í október á síðasta ári. Möller Records fagnar jafnframt 30. útgáfu sinni sem er platan Rivers and Poems, með Bistro Boy og japanska tónlistarmanninum Nobuto Suda. Dagskráin hefst 21:00 og aðgangur er fríkeypis.
Gyða Valtýsdóttir og Shahzad Ismaily halda tónleika í Mengi. Aðgangseyrir er 2000 krónur og tónleikarnir byrja 21:00.
Rapparinn Sesar A heldur tónleika og frumsýnir ný tónlistarmyndbönd á Gauknum. Sérstakir gestir verða Blazrocka, Herra Hnetusmjör og Anita Þórsdóttir. Dj Kocoon og Dj Moonshine þeyta skífum en gleðin byrjar 21:00 og það er ókeypis inn.
Föstudagur 30. janúar
Tvær kynslóðir íslenskra síðpönkara koma saman á Dillon en hljómsveitirnar Börn og Q4U halda hljómleika. Þeir hefjast 22:00 og aðgangur er ókeypis.
Pólski trompetleikarinn Tomasz Dabrowski spilar á tónleikum í Mengi. Hann ferðast um heiminn þessa dagana og spilar 30 tónleika í 30 borgum í tilefni þrítugsafmælis síns en svo skemmtilega vill til að föstudagurinn er 30. janúar. Tónleikarnir byrja 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Laugardagur 31. janúar
Hljómsveitirnar Ceasetone og Lockerbie spila á tónleikum á Loft Hostel. Tónleikarnir hefjast 20:30 og aðgangur er ókeypis.
Pétur Ben ásamt úrvalsliði hljóðfæraleikara spilar í Mengi. Aðgangseyrir er 2000 krónur og tónleikarnir byrja klukkan 21:00.
Hljómsveitin Valdimar heldur útgáfutónleika fyrir plötuna Batnar Útsýnið í Gamla Bíói. Miðaverð er 3990 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00.
Ariel Pink á Airwaves
Iceland Airwaves tilkynnti í dag um fyrstu listamennina sem koma fram á hátíðinni í nóvember á þessu ári. Þeir erlendu listamenn sem tilkynntir voru í dag eru: Ariel Pink, Batida, BC Camplight, East India Youth, Hinds, Mourn, The OBGMs, Operators, Perfume Genius og Weaves.
Auk þeirra koma fram íslensku listamennirnir: Asonat, dj flugvél og geimskip, Fufanu, GusGus, Júníus Meyvant, Júníus Meyvant, M-band, Pink Street Boys, Teitur Magnússon, Tonik Ensemble, Yagya og Young Karin.
Iceland Airwaves 2015 – nr.1 from Iceland Airwaves on Vimeo.
Oyama gefa lag í tilefni tónleika
Hin gítarsurgandi og draumkennda rokkhljómsveit Oyama mun halda tónleika ásamt Tilbury á Húrra, föstudagskvöldið 6. febrúar næstkomandi. Af því tilefni hafa Oyama-liðar ákveðið að gefa lagið Another Day frítt til niðurhals fram að tónleikunum, en hægt er að nálgast það hér. Oyama er nú að rísa úr dvala eftir annasama haustmánuði en þá gaf sveitin út sína fyrsta breiðskífu, Coolboy, sem lenti ofarlega á árslistum íslenskra miðla, auk þess sem lagið Siblings af henni var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þá fór hljómsveitin einnig í tónleikaferðaleg um Japan. Hlustið á Another Day hér fyrir neðan og skoðið fb-síðu viðburðarins hér.
Dagskrá Sónar tilbúin
Í dag var full dagskrá Sónar hátíðarinnar kynnt en á henni koma meðal annars fram Todd Terje, Skrillex, TV On The Radio, SBTRKT og Jamie xx. Hátíðin fer fram í Hörpu 12. til 14. febrúar næstkomandi. Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin á Íslandi en umfjöllun Straums um hátíð síðasta árs má finna hér og hægt er að nálgast miða hér.
Tónleikar helgarinnar 22. – 25. janúar 2015
Fimmtudagur 22. janúar
Úlfur Eldjárn kemur fram í Mengi og mun notast við takmarkað úrval hljóðfæra og tölvu til að semja eða spinna tónlist á staðnum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Gummi Hebb, Markús & Helgi Valur halda tónleika á Gamla Gauknum. Húsið opnar kl. 21:00 og hefjast tónleikarnir kl. 22:00. Það kostar 1000kr. inn.
Vrong, Mao Lafsson, Lord Pusswhip og Marteinn koma fram á fyrsta kvöldinu undir nafninu Blæti sem mun verða haldið á tveggja mánaðar fresti. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Föstudagur 23. janúar
Skuggamyndir frá Býsans eða Byzantine Silhouette leikur tónlist í Mengi sem á rætur að rekja til Búlgaríu, Grikklands, Makedóníu og Tyrklands. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Laugardagur 24. janúar
Hekla Magnúsdóttir kemur fram í Mengi í fyrsta skipti en tónlist hennar er blanda af theremíni og söng.Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Gus Gus ætla að fagna nýju ári með tónleikum í Gamla bíó. Dj Yamaho mun hita mannskapinn upp og spila fyrir gesti eftir að tónleikunum líkur. Húsið opnar kl 22.00 Gus Gus stíga á svið kl 23.00. Það kostar 5900 kr inn.
Boogie Trouble halda nýársball á skemmtistaðnum Húrra. Fjörið hefst klukkan 23:00 og það er frítt inn.
Sunnudagur 25. janúar
Kría Brekkan kemur fram á Lowercase night #16 á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.