Noah Lennox, betur þekktur sem Panda Bear og meðlimur Animal Collective, gaf í dag út lagið Latin Boys en því fylgir afar hugvíkkandi myndband. Lagið er af komandi plötu Panda Bear, Panda Bear Meets The Grim Reaper, sem er væntanleg 13. janúar. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.
Category: Fréttir
Kraumslistinn 2014 – Verðlaunaplötur
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, voru afhent í sjöunda sinn í dag. Líkt og undanfarin ár voru sex plötur sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri plötuútgáfu á árinu verðlaunaðar.
Kraumsverðlaununum og Kraumslistanum, 20 platna úrvalslista verðlaunanna sem þeim fylgja, er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að verðlauna þær sex hljómplötur sem hljóta verðlaunin – og jafnframt að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild sinni. Kraumslistinn er 20 platna úrvalslisti verðlaunanna sem birtur er í byrjun desember. Dómnefnd Kraumsverðlaunanna velur síðan og verðlaunar sérstaklega sex hljómplötur af þeim lista er hljóta sjálf Kraumsverðlaunin.
Kraumsverðlaunin 2014 hljóta
- · Anna Þorvaldsdóttir – Aerial
- · Börn – Börn
- · Hekla Magnúsdóttir – Hekla
- · Kippi Kanínus – Temperaments
- · Óbó – Innhverfi
- · Pink Street Boys – Trash From The Boys
Kraumslistinn 2014, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, sem þegar hefur verið tilkynntur er eftirfarandi:
· AdHd – AdHd 5
· Anna Þorvaldsdóttir – Aerial
· Ben Frost – Aurora
· Börn – Börn
· Grísalappalísa – Rökrétt framhald
· Hekla Magnúsdóttir – Hekla
· Kippi Kaninus – Temperaments
· Low Roar – O
· M-Band – Haust
· Oyama – Coolboy
· Óbó – Innhverfi
· Ólöf Arnalds – Palme
· Pink Street Boys – Trash From the Boys
· Russian Girls – Old Stories
· Sindri Eldon – Bitter & Resentful
· Singapore Sling – The Tower of Foronicity
· Skakkamanage – Sounds of Merry Making
· Skúli Sverris, Anthony Burr & Yungchen Lhamo – They Hold it For Certain
· Úlfur Kolka – Borgaraleg óhlýðni
· Þórir Georg – Ræfill
Meðal þeirra sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir verk sín frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru; Mammút, Cell 7, Sin Fang, Grísalappalísa, Gunnar Andreas Kristinsson, Just Another Snake Cult, DJ flugvél og geimskip, Ásgeir Trausti, Hjaltalín, Sóley, Moses Hightower, Retro Stefson, Samaris, Lay Low, Daníel Bjarnason, Ólöf Arnalds, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hildur Guðnadóttir, Agent Fresco, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit og FM Belfast. (sjá lista allra Kraumsverðlaunahafa hér að neðan)
Kraumslistinn, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, var valin af tíu manna dómnefnd, svokölluðu öldungaráði verðlaunanna, sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að hlusta á, vinna með og fjalla um íslenska tónlist. Ráðið skipa Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Benedikt Reynisson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Ólafur Halldór Ólafsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Trausti Júlíusson, Valdís Thor og Þórunn Edda Magnúsdóttir. Stærri 20 manna dómnefnd skipað ofangreindum aðilum og fleirum sá síðan um að velja 6 plötur af Kraumslistanum sem hlutu Kraumsverðlaunin.
Dómnefnd Kraumsverðlaunanna hefur hlustað á hátt í annað hundrað hljómplatna við val sitt á Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum 2014.
Tónleikar helgarinnar 11. – 13. desember
Fimmtudagur 11. desember
Hljómsveitin Árstíðir kemur fram á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukka 20:00 og það kostar 1500 kr inn.
Föstudagur 12. desember
Berndsen heldur útgáfutónleika á Húrra. Miðaverð er 1500 kr og húsið opnar 21:00.
Tónlistarmaðurinn Jesus Fucking Christ frá Noregi kemur fram á Dillon ásamt AMFJ og Laser Life. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og það er ókeypis inn.
Laugardagur 13. desember
Sveinn Guðmundsson heldur tónleika klukkan 17:00 í Jógasal Ljósheima á fjórðu hæð Borgartúns 3. Sveinn mun leika lög af plötu sinni „Fyrir herra Spock, MacGyver og mig“ í bland við ný lög. Það er frítt inn.
Nordic Events standa að vetrarpartý í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Aðal númer kvöldsins eru Claptone frá Þýskalandi, ásamt þeim koma fram Wildkats frá Skotlandi og Sísí Ey. Húsið opnar klukkan 1:00 og það kostar 4900 kr inn.
Fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Stranglers, Hugh Cornwell, kemur fram á Gamla Gauknum. Ásamt honum koma fram Pétur Ben, Hljómsveit Smutty Smiffs, 302, ásamt nokkrum rokkabillý og pönk plötusnúðum. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 3500 kr. inn.
Tónlistarmaðurinn Kött Grá Pje kemur fram á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 1500 kr inn.
Ghostigital ásamt Finnboga Péturssyni koma fram undir forskriftinni “Teygjanlegur Sannleikur” í Mengi. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr. inn.
Árslisti Straums 2014: 30. – 16. sæti
Fyrri árslistaþáttur Straums yfir 30 bestu plötur ársins er á dagskrá á X-inu 977 klukkan 23:00 í kvöld. Farið verður yfir 30. til 16. sæti í kvöld og næstu viku verður svo farið yfir 15. til 1. sæti.
Árslisti Straums 2014 – fyrri þáttur by Straumur on Mixcloud
30) tUnE-yArDs – Nikki Nack
29) Mourn – Mourn
28) Arca – Xen
27) Little Dragon – Nabuma Rubberband
26) Damon Albarn – Everyday Robots
25) Cashmere Cat – Wedding Bells EP
24) Metronomy – Love Letters
23) Yumi Zouma – Yumi Zouma EP
22) FKA twigs – LP1
21) Shamir – Northtown EP
20) Ben Khan – 1992 EP
19) Giraffage – No Reason
18) Mac DeMarco – Salad Days
17) Real Estate – Atlas
16) Stephen Malkmus & The Jicks – Wig Out at Jagbags
Lag og myndband frá Belle and Sebastian
Skoska indípoppsveitin Belle And Sebastian gaf í dag frá sér nýtt lag og myndband af sinni næstu breiðskífu sem væntanleg er í janúar. Lagið heitir Nobody’s Empire og er annað lagið af skífunni sem hefur litið dagsins ljós, en hið fyrra var stuðsmellurinn Party Line. Platan ber titilinn Girls In Peacetime Want To Dance og verður fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Write About Love Kom út árið 2010. Þá má geta þess að sveitin er væntanleg til Íslands að spila á All Tomorrow’s Parties hátíðinni næsta sumar. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.
Teitur Magnússon með útgáfutónleika og nýtt lag
Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon heldur útgáfutónleika á morgun miðvikudaginn 10. desember á skemmtistaðum Húrra í tilefni af útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar 27. Einvala lið spilar ásamt Teiti þetta kvöld. “Hljómsveitarsamsetning þessi verður reyndar svo stórfengleg að um einstakan viðburð er að ræða, því ólíklegt þykir að slík veglegheit endurtaki sig í bráð” segir Teitur.
Hljómsveitina skipa:
Erling Bang (Ojba Rasta, Celestine, I adapt), Ingibjörg Elsa Turchi (Boogie Trouble), Örn Eldjárn (Ylja), Samúel Jón Samúelsson (Jagúar), Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla, Múm), Arnljótur Sigurðsson (Ojba Rasta), Steingrímur Teague (Moses Hightower). Auk þess sem fleiri góðir leynigestir bregða á leik.
Lagið Nenni er búið að gera það gott að undanförnu og hér má heyra nýtt lag af plötunni. Vinur vina minna:
Glöggir hlustendur heyra þarna einkar sérstæðan hljóm cuicu sem framkallar apahljóð.
Húsið opnar 20:00.
Dagskráin hefst klukkan 21:00.
Björn Jörundur hitar upp.
Aðgangseyrir: 1500 kr
Platan á sérstöku tilboði.
Jamie xx á Sónar
Tónlistarmennirnir Jamie xx, Jimmy Edgar og Ryan Hemsworth voru tilkynntir fyrr í dag á Sónar hátíðina í Reykjavík. Auk þeirra var tilkynnt að Jón Ólafsson & Futuregrapher, Emmsjé Gauti, Páll Ivan frá Eiðum, Kött Grá Pé, AMFJ og Bjarki koma fram á hátíðinni. Sónar Reykjavik fer fram á 5 sviðum dagana 12, 13 og 14. febrúar í Hörpu.
Frumsýning á myndbandi frá GANGLY
Við fengum þetta myndband sent til okkar áðan frá nýrri íslenskri hljómsveit sem kallar sig GANGLY. Það kom hvergi fram hvaða aðilar standa að bandinu eða hver gerði myndbandið en bæði lag og myndband eru til fyrirmyndar. Lagið sem heitir Fuck With Someone Else mætti lýsa sem nútímalegri og vel útsettri poppsmíð sem er einstaklega vel raddað og skemmtilega skreytt. Hér er hægt að fylgjast með bandinu á facebook.
Tónleikahelgin 4.-6. desember
Fimmtudagur 4. desember
Breska raftónlistarsveitin Hacker Farm kemur fram á tónleikum í Mengi á vegum Falk hópsins. Einnig koma fram Krakkbot og Trouble en tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Föstudagur 5. Desember
Svokallað Psychedelic Extravaganza kvöld verður haldið á Gauk á stöng en fram koma Bob, Sushi Submarine og The Electric Space Orchestra. Skynvíkkunarveislan hefst klukkan 22:00 og aðgangseyrir er litlar 500 krónur.
Áki Ásgeirsson og Halldór Úlfarsson koma fram á tónleikum í Mengi. Flutt verða vídeóverk og tónlistatriði sem tengjast ferð þeirra Áka og Halldórs á seglskútu um Breiðafjörð sumarið 2012. Halldór tók upp myndbönd sem sýnd verða við raftónlist Áka. Að auki leika þeir saman á Dórófón og önnur rafræn hljóðfæri. Tónleikarnir hefjast 21:00 og það kostar 2000 inn.
Sænski tónlistarmaðurinn Adam Evald leikur á Dillon, tónleikarnir byrja 22:00 og aðgangseyrir er 1000 krónur.
Laugardagur 6. Desember
Í Þjóðleikhúskjallaranum verða Tribute tónleikur til heiðurs Skúla Mennska. Þar mun einvalalið söngvara flytja helstu lög Skúla ásamt hljómsveit en meðal flytjenda eru Pétur Ben, Markús Bjarnason, 7oi og Bóas Hallgrímsson. Leynigestur, kynn og gítarleikari verður svo Skúli Mennski sjálfur en tónleikarnir byrja 22:00 og miðverðu er 2500 krónur.
Tón- og myndlistarmaðurinn Páll Ívan frá Eiðum kemur fram á tónleikum í Mengi.
Hacker Farm kemur fram ásamt AMFJ, Ultraorthodox og Harry Knuckles á Paloma. Rafgeggjunin byrjar 21:00 og aðgangseyrir er 1000 krónur.
Jólastraumur 1. desember 2014
Það verður sannkölluð jólastemming í Straumi í kvöld – Þar sem áhersla verður lögð á jólalög sem eru ný eða nýleg! Við heyrum jólalög með The Flaming Lips, Wild Nothing, !!!, Los Campesinos og mörgum öðrum! Jólastraumur með Óla Dóra frá 23:00 í kvöld á X-inu 977!
Jólastraumur 2014 by Straumur on Mixcloud
1) Just Like Christmas – Low
2) Ho Ho Ho – Liz Phair
3) Before December (You’re Alive) – GRMLN
4) Happy Xmas (War Is Over) – The Flaming Lips & Yoko Ono
5) Lonely This Christmas – DZ Deathrays
6) White Havoc – Deer Tick
7) When Christmas Comes – Los Campesinos!
8) One Christmas Catalogue – Wild Nothing
9) Shut Your Mouth, It’s Christmas – A Sunny Day In Glasgow
10) The Party’s Right (remix Paul McCartney Christmas Time) – Psycho Les
11) Fyrir Jól (fknhndsm Xmas Afrika edit) – Svala Björgvins
12) And Anyway It’s Christmas – !!!
13) Last Christmas – Summer Camp
14) Baby, It’s Cold Outside (ft. Sharon Van Etten – Rufus Wainwright
15) Auld Lang Syne – Andrew Bird
16) Another Song About Being Alone At Xmas – Lightspeed Champion
17) Have Yourself A Merry Little Christmas – Cat Power
18) The Christmas Song – Mark Kozelek
Undirspil: Hark! The Herald Angels Sing! – Sufjan Stevens