Hin gítarsurgandi og draumkennda rokkhljómsveit Oyama mun halda tónleika ásamt Tilbury á Húrra, föstudagskvöldið 6. febrúar næstkomandi. Af því tilefni hafa Oyama-liðar ákveðið að gefa lagið Another Day frítt til niðurhals fram að tónleikunum, en hægt er að nálgast það hér. Oyama er nú að rísa úr dvala eftir annasama haustmánuði en þá gaf sveitin út sína fyrsta breiðskífu, Coolboy, sem lenti ofarlega á árslistum íslenskra miðla, auk þess sem lagið Siblings af henni var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þá fór hljómsveitin einnig í tónleikaferðaleg um Japan. Hlustið á Another Day hér fyrir neðan og skoðið fb-síðu viðburðarins hér.
Straumur 26. janúar 2015
Í Straumi í kvöld skoðum við nýjar plötur frá Jessica Pratt og Natalie Prass auk þess sem við kíkjum á nýtt efni frá José González, St. Vincent, Operators og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra í kvöld á slaginu 23:00 á X-inu 977.
1) Back, Baby – Jessica Pratt
2) Ecstasy In My House – Operators
3) Bad Believer – St. Vincent
4) Leaf Off / The Cave – José González
5) How Could You Babe – Tobias Jesso Jr.
6) Greycedes – Jessica Pratt
7) Moon Dude – Jessica Pratt
8) diskhat ALL prepared1mixed 13 – Aphex Twin
9) Temple Sleeper – Burial
10) Reprise – Natalie Prass
11) Violently – Natalie Prass
12) Never Over You – Natalie Prass
13) Ophelia – Marika Hackman
14) Fleece – Gabi
Dagskrá Sónar tilbúin
Í dag var full dagskrá Sónar hátíðarinnar kynnt en á henni koma meðal annars fram Todd Terje, Skrillex, TV On The Radio, SBTRKT og Jamie xx. Hátíðin fer fram í Hörpu 12. til 14. febrúar næstkomandi. Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin á Íslandi en umfjöllun Straums um hátíð síðasta árs má finna hér og hægt er að nálgast miða hér.
Tónleikar helgarinnar 22. – 25. janúar 2015
Fimmtudagur 22. janúar
Úlfur Eldjárn kemur fram í Mengi og mun notast við takmarkað úrval hljóðfæra og tölvu til að semja eða spinna tónlist á staðnum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Gummi Hebb, Markús & Helgi Valur halda tónleika á Gamla Gauknum. Húsið opnar kl. 21:00 og hefjast tónleikarnir kl. 22:00. Það kostar 1000kr. inn.
Vrong, Mao Lafsson, Lord Pusswhip og Marteinn koma fram á fyrsta kvöldinu undir nafninu Blæti sem mun verða haldið á tveggja mánaðar fresti. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Föstudagur 23. janúar
Skuggamyndir frá Býsans eða Byzantine Silhouette leikur tónlist í Mengi sem á rætur að rekja til Búlgaríu, Grikklands, Makedóníu og Tyrklands. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Laugardagur 24. janúar
Hekla Magnúsdóttir kemur fram í Mengi í fyrsta skipti en tónlist hennar er blanda af theremíni og söng.Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr inn.
Gus Gus ætla að fagna nýju ári með tónleikum í Gamla bíó. Dj Yamaho mun hita mannskapinn upp og spila fyrir gesti eftir að tónleikunum líkur. Húsið opnar kl 22.00 Gus Gus stíga á svið kl 23.00. Það kostar 5900 kr inn.
Boogie Trouble halda nýársball á skemmtistaðnum Húrra. Fjörið hefst klukkan 23:00 og það er frítt inn.
Sunnudagur 25. janúar
Kría Brekkan kemur fram á Lowercase night #16 á Húrra. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það er frítt inn.
Straumur 19. janúar 2015
Í Straumi í kvöld heyrum við nýtt efni frá Toro Y Moi, Amen Dunes, Joey Bada$$, Sleater Kinney, Purity Ring, Refs og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur 19. janúar 2015 by Straumur on Mixcloud
1) Begin Again – Purity Ring
2) Empty Nester – Toro Y Moi
3) All In My Head (ft. Desirée Dawson) Pat Lok
4) Pains Goes Away – Refs
5) Quicksand – Björk
6) Hotfoot – Doldrums
7) Paper Tail$ – Joey Bada$$
8) Black Beetles – Joey Bada$$
9) Nenni (Ívar Pétur remix) – Teitur Magnússon
10) Price Tag – Sleater Kinney
11) Hey Darling – Sleater Kinney
12) Cavalry Captan – The Decemberists
13) I Know Myself (Montreal) – Amen Dunes
14) Song to the Siren – Amen Dunes
15) My Baby Don’t Understand Me – Natalie Prass
Nýtt lag frá Björk
Fyrsta lagið til að heyrast af plötunni Vulnicura með Björk er nú aðgengilegt á netinu. Lagið heitir Stone Milker og er opnunarlagið á plötunni sem kemur út í mars og fylgir á eftir plötunni Biophilia frá árinu 2011.
Lagalisti Vulnicura
01. Stone Milker (6:49)
02. Lion Song (6:16)
03. History of Touches (2:56)
04. Black Lake (10:04)
05. Family (7:57)
06. NotGet (6:23)
07. Atom Dance (ft. Antony Hegarty) (8:08)
08. Mouth Mantra (6:06)
09. Quicksand (3:48)
Tónleikahelgin 16.-18. janúar
Föstudagur 16. Janúar
Fyrsta stundin verður haldin í Mengi. Það er fyrsta kvöldið í tónleikaröð sem Mengi mun bjóða upp á með reglulegu millibili yfir árið, þar sem stórir hópar hljóðfæraleikara leika saman. Í kvöld verður spilað á strengjahljóðfæri en meðal gesta kvöldsins verða Úlfur Hansson, Una Sveinbjarnardóttir, Gyða Valtýsdóttir, Arnljótur Sigurðsson, Borgar Magnason, Benedikt H Hermannsson, Ólöf Arnalds, Guðmundur Óskar, Katie Buckley, Richard Andersson, Skúli Sverrisson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Hljómsveitirnar Mercy Buckets, Laser Life og Grit Teeth koma fram á tónleikum á Íslenska Rokkbarnum í Hafnafirði. Tónleikarnir hefjast stundvíslega 23:30 og það er ókeypis inn.
Hljómsveitin Var spilar á Dillon, þau hefja leik 22:00 og það er ókeypis inn.
Laugardagur 17. Janúar
Vio, sigurvegarar Músíktilrauna 2014, gáfu út sína fyrstu plötu DIVE IN skömmu fyrir jól, og munu fagna útgáfu hennar með tónleikum á Húrra. Hljómsveitin Var, sem unnu Músíktilraunir árið 2013, hitar upp en tónleikarnir byrja 22:00 og aðgangseyrir er 1000 krónur.
Mótorhead tribute-bandið Bömpers leikur á Gauknum. Fjörið hefst 22:00 og aðgangseyrir er 3000 krónur.
Hljómsveitirnar Wago og Munstur koma fram á Dillon. Tónleikar hefjast 22:00 og það er ókeypis inn.
Iggy Pop á All Tomorrow’s Parties
Nú rétt í þessu var tilkynnt að aldni æringinn og eilífðarpönkarinn Iggy Pop muni koma fram á All Tomorrow’s Parties hátíðinni í Sumar. Þá var einnig tilkynnt að sveitirnar Drive Like Jehu, The Bug, Ought, Kiasmos, HAM, Xylouris White, Clipping og Grimm Grimm komi fram. Þetta bætist við langan lista listamanna sem áður hefur verið kynntur þar sem hæst ber nöfn eins og Belle and Sebastian, Run The Jewels og Godspeed You! Black Emperor. Þetta er í þriðja skiptið sem All Tomorrows hátíðin fer fram á Íslandi en hún verður 2.-4. júlí á gamla varnarliðssvæðinu Ásbrú fyrir utan Keflavík. Hér er hægt að lesa umfjöllun Straums um síðustu hátíð.
Dagskráin á Sónar Reykjavík klár
Dagskráin fyrir tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík er nú tilbúin. Hægt er að skoða hana í heild sinni hér. Alls munu 64 atriði vera á dagskrá á hátíðinni sem fram fer 12. – 14. febrúar í Hörpu. Meðal þeirra eru: Skrillex, Paul Kalkbrenner, SBTRKT, Jamie xx, Todd Terje, TV On the Radio, Kindness, Nina Kraviz, Jimmy Edgar, Elliphant, Ryan Hemsworth, Sophie, Samaris, Mugison, Prins Póló og Sin Fang.
Meðal þeirra sem bætt var við dagskrána í dag eru: Tonik Ensemble, M-Band, Thor, Valgeir Sigurðsson, DJ Flugvél og Geimskip, Lily the Kid, Lord Pusswhip og Hekla Magnúsdóttir.
Hægt er að kaupa miða á hátíðina http://sonarreykjavik.com/en/pg/tickets.
Straumur 12. janúar 2015
Í Straumi í kvöld heyrum við nýtt efni frá Waxahatchee, Django Django, MSTRO, The Go! Team, Moon Duo, Mark Ronson og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur 12. janúar 2015 by Straumur on Mixcloud
1) First Light – Django Django
2) So In Love With U – MSTRO
3) Leaving Los Feliz (ft. Kevin Parker) – Mark Ronson
4) Air – Waxahatchee
5) The Scene Between – The Go! Team
6) Play For Today – Belle and Sebastian
7) Free The Skull – Moon Duo
8) Zero – Moon Duo
9) Shoot ‘Em Up, Baby – Andy Kim
10) Mr. Face – Ty Segall
11) The Picture – Ty Segall
12) Oh It’s Such a Shame – Jay Reatard