Hérna & hérna
Góða skemmtun!
Bandaríska söngkonan Nika Roza Danilova sem er best þekkt undir listamannsnafninu Zola Jesus er aðeins 24 ára gömul en hefur samt sem áður sent frá sér heilmikið af gæða efni frá því hún hóf sinn feril. Nika kemur fram í Gamla Bíó á Iceland Airwaves hátíðinni klukkan 1:00 næsta laugardag. Við tókum hana í stutt spjall á dögunum.
Breski raftónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Jon Hopkins kemur fram í Hörpu Silfurberg á næsta laugardag klukkan 0:10 á Iceland Airwaves hátíðinni. Við áttum við hann stutt spjall á dögunum.
Sindri Eldon hefur reynslu af Iceland Airwaves bæði sem blaðamaður fyrir Reykjavík Grapevine og sem tónlistarmaður með hljómsveitunum Dáðadrengjum, Dynamo Fog og Sindra Eldon & The Ways. Við spjölluðum við Sindra um hátíðina.
Hvernig var þín fyrsta upplifun af því að spila á Airwaves?
Að spila með Dáðadrengjum á Airwaves 2003. Ég svona semi vissi hvaða hátíð þetta var fyrir það, en vissi ekkert að þetta væri eitthvað mikið mál. Ég var sautján ára og nýbyrjaður að drekka (ég blómstraði seint), og svo allt í einu var ég á NASA að opna fyrir Quarashi fyrir framan fullan sal af útlendingum. Það var ýkt kúl, eins og maður sagði gjarnan 2003.
Á hversu mörgum hátíðum hefur þú spilað?
Uuu, 2003, 2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012 og svo núna 2013, með ýmsum hljómsveitum, þannig að þær verða tíu allt í allt.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur sótt sem gestur?
Ekkert stendur upp úr í fljótu bragði.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur spilað á sjálfur?
Sindri Eldon & the Ways í fyrra. Við vorum með svo geðveikt slot, maður! Hálftvö á laugardagsnótt, Amsterdam smekkfullt af blindfullu fólki í góðum fílíng, við í geðveiku formi, tókum klukkutímasett eins og einhvers konar goð meðal manna. Nei djók. Eða þú veist samt ekki djók, við vorum ógeðslega góðir.
Hvernig finnst þér hátíðin hafa breyst og þróast í gegnum árin?
Veitekki… hún var fyrst bara einhver svona vonlaus íslendinga-ófagmennska þar sem við vorum reddandi öllu með því að plögga dóti með lánum og loforðum. Svo varð þetta að einhverju svona kúl thing, þökk sé Sjálfstæðisflokknum og Dóra Ásgríms. Matadorpeningarnir flæddu óheflaðir um æðar efnahagsins, og stóru nöfnin byrjuðu að mæta. Síðan pompaði náttúrulega botninn undan öllu því hérna um árið, og hátíðin var mjög lágstemmd í nokkur ár, bara íslensk númer og einhverjir desperate útlendingar. Síðan þá er Airwaves búin að skríða aftur inn í ágætis sess, sem eitthvað svona fyrir-hruns-revival-fyrirbæri, aðallega þökk sé kvikmyndaiðnaðnum, og stóru nöfnin byrjuð að mæta aftur. The sky’s the limit!
Hvað er uppáhalds tónleikastaðurinn þinn?
Finnst þeir allir alveg ýkt lélegir á heimsmælikvarða. Allir bestu staðirnir eru off-venue. Fuck the system!
Hvaða tónleikum sérðu mest eftir að hafa misst af ?
Úff, ég veit ekki… það eru alltaf einhverjir typpatrúðar ráfandi um röflandi um hvað Ghostigital eða Bloodgroup eða Reykjavík! eða einhverjir hafi verið svo geðveikir, maður er löngu hættur að taka mark á þessu.
Hefurðu einhver góð ráð handa tónlistarmönnum sem eru að spila á Airwaves í fyrsta skiptið?
Hvort sem þú talar ensku eða íslensku við salinn, ekki útskýra af hverju þú ert að tala íslensku/ensku. Öllum er sama, fíflið þitt. Ekki biðja fólk um að koma nær sviðinu, ekki láta fólk klappa í takt, ekki segja okkur um hvað lögin eru, ekki reyna að vera fyndinn, ekki reyna að púlla íslenskan aulahúmor á útlendingana, ekki tala um hversu fullur/þunnur þú ert… bara ekki fokking vera óþolandi fáviti talandi um ömurlegt kjaftæði. Mér er alveg sama hversu lengi ég beið í röð eftir að sjá bandið þitt, ef ég heyri þig segja sögu af því hvernig lagið þitt var samið meðan bassaleikarinn var með flensu eða eitthvað svoleiðis, ég fokking grýti þig með glerflösku. Haltu fokking kjafti.
Hverju ertu spenntastur fyrir á hátíðinni í ár? Erlent/innlent?
Neinei, finnst bara best að ráfa milli venuea að sjá hvað fólk hefur upp á að bjóða.
Hvaða þýðingu hefur Iceland Airwaves fyrir íslensku tónlistarsenuna?
Hún er mjög gott showcase fyrir það besta sem íslensk tónlist hefur upp á að bjóða. Öll böndin gera sitt besta til að vera kúl fyrir útlendingana, og það er bara rokk.
Hvaða beinu áhrif hefur hátíðin haft fyrir þig og þína hljómsveit/hljómsveitir?
Engin.
Hvað hefur þú spilað mest á mörgum tónleikum yfir eina hátíð?
U, ég held við höfum verið með tíu gigg allt í allt 2011, og við þurftum að afbóka eitt þeirra. Síðan þá höfum við farið aðeins varlegara í að bóka off-venue gig.
Uppáhalds Iceland Airwaves hátíðin þín í gegnum árin? Af hverju?
Ekki gott að segja… þær hafa verið mjög hressar margar hverjar.
Kraftwerk eða Yo La Tengo?
Yo La Tengo. Ég hef séð Kraftwerk tvisvar, og þetta er bara ljósashow með góðri tónlist. Ég veit ekki hversu lífleg YLT eru, en þau hljóta að vera meiri spennandi að horfa á en Kraftwerk.
Listasafnið eða Harpa?
Fokking hvorugt. Sportbarinn í Ármúla.
Með hvaða hljómsveit/hljómsveitum ertu að spila á þessari hátíð og hvar er hægt að fylgjast með þér?
Sindri Eldon & the Ways! www.facebook.com/events/1392415404323527
Eitthvað sem þú villt koma á framfæri að lokum?
Rokk í smettið!
Hin tilraunakennda, fjölbreytta og dularfulla hljómsveit Goat kemur að eigin sögn frá litlum bæ frá norður Svíþjóð að nafninu Korpilombolo. Ekkert er vitað um meðlimi hljómsveitarinnar nema að samkvæmt þeim sjálfum eru þau aðeins lítill hluti stærri hóps fólks sem kallar sig einnig Goat og telur yfir 200 manns. Þau hafa öll búið í bænum þar sem fólk hefur stundað voodoo galdra í margar aldir auk tónlistar. Við fengum símanúmer hjá ónefndum meðlim bandsins í gegnum krókaleiðir sem sagðist spila á trommur. Hann vildi ekki geta nafns þegar við slógum á þráðinn.
Viðtal við ónefndan meðlim Goat:
Let It Bleed
Goadhead
Tónleikar með hljómsveitinni frá því í sumar
Ólafur Örn Josephsson tónlistarmaður hefur gefið út tónlist undir listamannsnafninu Stafrænn Hákon frá árinu 1999 og spilaði í fyrsta skipti á Iceland Airwaves 2001. Ólafur ræddi við okkur um Airwaves og bandið sitt Stafrænan Hákon.
Hver var fyrsta Airwaves hátíðin sem þú fórst á sem gestur og hvað var eftirminnilegast á henni?
Fyrsta hátíðin árið 1999 í einhverju flugskýli .. voru tvö bönd að mig minnir, Gus Gus og Sigur Rós. Bæði frekar eftirminnilegt
Hvernig var þín fyrsta upplifun af því að spila á Airwaves?
Spilaði fyrsta skiptið árið 2001, þá með hljómsveitinni Ampop. Það var á Kaffi Thomsen og það var svaka stuð. Fullt af fólki og allir frekar sáttir enda mjög spennandi allt saman.
Á hversu mörgum hátíðum hefur þú spilað?
hmmmm….. 2001, 2007, 2010, 2011 og 2012, þannig að núna árið 2013 er 6. skiptið.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur sótt sem gestur?
Margir mjög góðir sem maður hefur dottið inná. Man hversu Sigur Rós voru góðir í Hafnarhúsinu árið 2001 enda frekar heitir á þeim tíma. Svo voru Deerhof árið 2007 helvíti magnað. Annars Heavy Experience árið 2011 á Amsterdam eitt það eftirminnilegasta af þessu.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur spilað á sjálfur?
Það var sennilega árið 2011 með hljómsveitinni Náttfara í Norðurljósum í Hörpunni. Magnað sánd og manni leið virkilega vel það kvöldið á sviðinu.
Hvernig finnst þér hátíðin hafa breyst og þróast í gegnum árin?
Hún stækkar og stækkar með hverju árinu virðist vera. Og ekki verra að alltaf verið að batna til muna aðstæður og fleira í þeim dúr. Virkilega vel framkvæmd í gangi hjá fólkinu sem skipuleggur og leggur hönd á plóg. Get ekki ímyndað mér haustmánuði án þessarar hátíðar.
Hvað er uppáhalds tónleikastaðurinn þinn?
Amsterdam auðvitað og svo náttla Iðnó alltaf góður.
Hefurðu einhver góð ráð handa tónlistarmönnum sem eru að spila á Airwaves í fyrsta skiptið?
Njóta þess að spila og gefa sig 110% í þetta stöff… annars er þetta vonlaust og hælarnir kælast fljótt.
Hverju ertu spenntastur fyrir á hátíðinni í ár? Erlent/innlent?
Yo La Tengo (séð áður en alltaf til í meira, eitt það magnaðasta tónleikaband sem ég hef upplifað.) Nolo með trommara og Stroff auðvitað.
Hvaða þýðingu hefur Iceland Airwaves fyrir íslensku tónlistarsenuna?
Gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska tónlistarmenn að fá tækifæri til að koma fram á svona glæsilegri hátíð. Ekki sjálfgefið og það ætti að halda flestum á tánum. Þetta er orðinn heljarinnar megamessa í íslensku listalífi, svo einfalt er það.
Hvað hefur þú spilað mest á mörgum tónleikum yfir eina hátíð?
Í fyrra var það 5 sinnum með offvenue.. það var feikinóg.
Uppáhalds Iceland Airwaves hátíðin þín í gegnum árin? Af hverju?
allar góðar á sinn hátt.
Kraftwerk eða Yo La Tengo?
Yo La Tengo án vafa enda ennþá frekar fersk, Krafwerk gæti ég hugsað mér að sjá fyrir 35 árum.
Listasafnið eða Harpa?
Fer eftir atriðum. Annars er ég yfirleitt með vonbrigðum með hljómburð í Listasafninu.
Með hvaða hljómsveit/hljómsveitum ertu að spila á þessari hátíð og hvar er hægt að fylgjast með þér?
Þetta skiptið er það bara Stafrænn Hákon. Náttfari í fríi að mér skilst og Per:Segulsvið fær aldrei aðgang að slíkri hátíð.
Eitthvað sem þú villt koma á framfæri að lokum?
Já ætla að láta móðir mína sauma STROFF á allar flíkurnar mínar fyrir hátíðina, til að þrengja soldið að ökklum og úlnliðum.
Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall hefur Mac Demarco gefið út tvær sólóplötur og fjórar aðrar með fyrrum hljómsveit sinni Makeout Video. Þegar við hringdum í Mac var hann að leggja lokahönd á sína þriðju plötu sem kemur út í apríl. Mac kemur fram í Hörpu Silfurberg laugardaginn 2. nóvember klukkan 21:00 og fyrr um daginn á off-venue M for Montreal í Stúdentakjallarnum klukkan 18:30. Við spurðum hann út í væntanlega plötu, senuna í Montreal þar sem hann bjó um skeið og líflega tónleikaframkomu.
Agnes Björt Andradóttir söngkona hljómsveitarinnar Sykur hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir magnaða sviðsframkomu og feikna sterka rödd. Agnes spilar í ár á sinni þriðju Airwaves hátíð ásamt hljómsveit sinni Sykur.
Hver var fyrsta Airwaves hátíðin sem þú fórst á sem gestur og hvað var eftirminnilegast á henni?
Það var árið 2008. Það sem var eftirminnilegast á hátíðinni það árið voru tónleikar hljómsveitarinnar Mae Shi sem er experimental indie band frá Los Angeles sem átti vel við litlu rebel Agnesi. Svo fór ég í eftirminnilegt pottapartí í ókunnugu húsi þar sem alklæðnaður var skylda, það er frekar ógirnilegt að fara í heitapott í gallabuxum ásamt 20 manns.
Hvernig var þín fyrsta upplifun af því að spila á Airwaves?
Fyrsta skipti sem ég spilaði á airwaves var árið 2011. Það var sturluð upplifun. Við spiluðum á Nasa, klukkan 3, aðfaranótt sunnudags fyrir troðfullan sal af sveittu fólki sem þráði ekkert annað en að dansa og skemmta sér. Stemningin var helluð. Við komum með lítið brimbretti með okkur og Stefán sörfaði krádið. Þetta er í top 3 af skemmtilegustu giggum sem að ég hef einhverntíman spilað. R.I.P Nasa!
Á hversu mörgum hátíðum hefur þú spilað?
Í ár er ég að spila á þriðju hátíðinni minni. Ég spilaði 2011 og 2012 með Sykur.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur sótt sem gestur?
Mae Shi
Hvernig finnst þér hátíðin hafa breyst og þróast í gegnum árin?
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því af því að mér finnst ég hafa breyst svo mikið sjálf. En ég hef tekið eftir því að fleiri erlendir gestir hafa bæst í hópinn og stemningin og undirbúningurinn eykst með hverju árinu finnst mér. Fyrir mér hefur hátíðin stækkað og þetta er orðið bara svona eins og jólin eða páskarnir.
Hefurðu einhver góð ráð handa tónlistarmönnum sem eru að spila á Airwaves í fyrsta skiptið?
Fyrst og fremst að vera prófessjonal, halda einbeitingu, sofa vel, ekki vera þunn/ur. Airwaves er hátíð þar sem fólk kemur saman, óháð aldri, búsetu eða whatever-the-shit-they’re-about með það eitt í huga að skemmta sér. Yfir krádinu ríkir ákveðið frelsi og jákvæðni. Þau gigg sem bjóða uppá þetta krád eru bestu giggin til að spila á, þau geta kennt manni svo margt á ljúfan máta. Ef þú ert að spila í fyrsta skipti á airwaves, njóttu þess og ekki vera feimin/n að leyfa sjálfum þér að upplifa þig eina/n af krádinu.
Hvaða þýðingu hefur Iceland Airwaves fyrir íslensku tónlistarsenuna?
Uppskera, árshátíð og góð tenging fyrir senuna út í heim.
Hvað hefur þú spilað mest á mörgum tónleikum yfir eina hátíð?
Metið er minnir mig sjö tónleikar árið 2011. Við spilum fjóra tónleika í ár.
Kraftwerk eða Yo La Tengo?
Kraftwerk
Listasafnið eða Harpa?
Fer eftir ýmsu
Með hvaða hljómsveit/hljómsveitum ertu að spila á þessari hátíð og hvar er hægt að fylgjast með þér?
Ég er að spila með Sykur. Hérna er dagskráin okkar —
miðvikudagur = Jör klukkan 17:00 (off venue)
föstudagur = Þjóðleikhúskjallarinn klukkan 2:10
laugardagur = Laundromat Cafe klukkan 15:00 (off venue) og Harpa Norðurljós klukkan 00:40
Eitthvað sem þú villt koma á framfæri að lokum?
Hlakka til að sjá ykkur elskur! LET’S GO!
Snorri Helgason spilaði á Iceland Airwaves fyrst árið 2006 með hljómsveit sinni Sprengjuhöllinni en síðan þá hefur hann komið fram á hverri einustu hátíð. Snorri gaf nýlega út hina frábæru plötu Autumn Skies en hann mun flytja efni af henni á hátíðinni i ár.
Hver var fyrsta Airwaves hátíðin sem þú fórst á sem gestur og hvað var eftirminnilegast á henni?
Ég held að fyrsta og eina skiptið sem ég hafi farið á Airwaves hafi verið 2005 eða 4 þegar það var í Laugardalshöll að mestu leyti. Fatboy Slim og eitthvað sjitt (2002). Svo hef ég spilað á hverri hátíð síðan 2006.
Hvernig var þín fyrsta upplifun af því að spila á Airwaves?
Ég spilaði fyrst á Airwaves 2006 með Sprengjuhöllinni á Grand Rokk. Það var ógeðslega gaman. Þetta voru kannski okkar 7-8 tónleikar eða eitthvað svoleiðis. Við vorum bara nýbyrjaðir og sumir okkar eiginlega nýbyrjaðir að spila á hljóðfærin sín. En við höfðum hjartað á réttum stað og það skilaði sér og það var mega stemmning.
Á hversu mörgum hátíðum hefur þú spilað?
2006-2013. Þetta verður þá mín áttunda.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur sótt sem gestur?
FM Belfast á gamla Gauk á Stöng líklega á Airwaves 2007. Djös stemmning.
Hvað eru eftirminnilegustu tónleikarnir sem þú hefur spilað á sjálfur?
2008 spilaði Sprengjuhöllin á Lúdó sem var í kjallaranum þar sem Bónus er núna á Hallveigarstíg. Þetta var hellað venue og svona frekar mikill fermingarveislufílingur yfir öllu. Það vantaði bara heitu brauðréttina og nokkrar ömmur. Ofan á allt þetta var ég alveg fáránlega veikur þennan dag og spilaði allt giggið eiginlega í algjöru óráði. Í síðasta laginu hneig ég næstum því niður en náði að styðja mig við magnarann minn. Staulaðist heim alveg gjörsamlega búinn á því. En þetta var gott gigg.
Hvernig finnst þér hátíðin hafa breyst og þróast í gegnum árin
Bara til hins betra. Allt skipulag og allt utanumhald er orðið miklu miklu betra. Það er bara allt annar fílingur yfir þessu núna en fyrir nokkrum árum. Miklu meira pottþétt og pro og þá er þetta allt saman miklu skemmtilegra.
Hvað er uppáhalds tónleikastaðurinn þinn?
Á Íslandi er það líklega Græni Hatturinn á Akureyri og Sjóræningjahúsið á Patreksfirði. En ef ég á að velja eitthvað Airwavesvenue þá er það pottþétt Gamla Bíó.
Hefurðu einhver góð ráð handa tónlistarmönnum sem eru að spila á Airwaves í fyrsta skiptið?
Passið upp á að hvíla ykkur og heilsuna. Í alvöru. Þetta er djös törn og mikið álag á líkamann. Farið í sund og reynið að borða eins vel og getið. Ekki bara pullur og börrar. En auðvitað verðiði að njóta líka. Þetta er gaman.
Hverju ertu spenntastur fyrir á hátíðinni í ár? Erlent/innlent?
Yo La Tengo. Ekki spurning.
Hvaða þýðingu hefur Iceland Airwaves fyrir íslensku tónlistarsenuna?
Mjög mjög mikla. Þetta er algjör vítamínsprauta fyrir senuna alla.
Hvaða beinu áhrif hefur hátíðin haft fyrir þig og þína hljómsveit/hljómsveitir?
Ég fann útgefanda á Winter Sun á GAS-svæðinu á hátíðinni 2011 sem gaf hana svo út ári seinna. 2012 vorum við bókuð á Eurosonic og fundum synch-agent í LA sem hefur reynst okkur vel. Svo hef ég kynnst fullt af góðu fólki sem hefur hjálpað mér í gegnum tíðina með alls konar smáatriði og tengingar og plöggerí.
Hvað hefur þú spilað mest á mörgum tónleikum yfir eina hátíð?
13 stykki árið 2011. Það var assskoti mikið.
Uppáhalds Iceland Airwaves hátíðin þín í gegnum árin? Af hverju?
2012. Hún var bara einhvern veginn svo drullu næs. Þær verða einhvern veginn alltaf betri með hverju árinu. Ég hlakka mikið til að sjá hvernig þau ætla að toppa sig í ár. Engin pressa samt.
Kraftwerk eða Yo La Tengo?
Yo La fökkkings Tengo baby.
Listasafnið eða Harpa?
Harpa. Alla leið í bankann.
Með hvaða hljómsveit/hljómsveitum ertu að spila á þessari hátíð og hvar er hægt að fylgjast með þér?
Ég er bara að spila með SnoHe flokknum. Tvisvar on-venue með hljómsveitinni og svo 4 sinnum off-venue. Það er best að fylgjast með okkur á Fésinu: www.facebook.com/helgasonsnorri
Í Straumi næstu tvö mánudagskvöld munum við fara yfir það helsta á Iceland Airwaves í ár. Í þáttunum kíkjum við á nokkra af þeim erlendu listamönnum sem koma fram á hátíðinni auk þess sem við tökum nokkra þeirra tali. Airwaves Straumur með Óla Dóra í kvöld á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Airwaves Straumur 21. október 2013 by Straumur on Mixcloud
1) Computer World – Kraftwerk
2) Your Drums, Your Love – AlunaGeorge
3) Attracting Flies – AlunaGeorge
4) You – Gold Panda
5) Feeling Special – Mykki Blanco
6) One Second Of Love – Nite Jewel
7) Warni Warni – Omar Souleyman
8) What Love – Jagwar Ma
9) She Will – Savages
10) Son The Father – Fucked Up
11) Ghosts – On An On
12) Pilgrim – MØ
13) XXX 88 – MØ
14) Mountains Crave – Anna Von Hausswolff
15) Can’t Get My Mind Off You – Sean Nicholas Savage
16) More Than I Love Myself – Sean Nicholas Savage