Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/straum.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 67 olidori – Page 44 – STRAUMUR
Í Straumi í kvöld verður fjallað um nýtt efni frá Hermigervill, aYia, Thundercat, Clark, Visible Cloaks, Animal Collective, Flume, Talaboman, Sun Kill Moon og fleirum. Straumur með Óla Dóra í kvöld klukkan 23:00 á X-inu 977.
Í Straumi í kvöld kennir margra grasa. Í fyrri hluta þáttarins verður farið yfir nýtt efni með listamönnum á borð TQD, Hercules & Love Affair, Superorganism, Dirty Projectors og fleirum. Seinni hluti þáttarins verður svo tileinkaður Sónar Reykjavík tónlistarhátíðinni sem fram fer í Hörpu um næstu helgi. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977 í kvöld.
1) Controller (ft. Faris Badwan) – Herclules & Love Affair
2) Something For you M.I.N.D. – Superorganism
3) Cool Your Heart (feat. D∆WN) – Dirty Projectors
4) Vibsing Ting – TQD
5) Freeway Crush (Nutrition remix) – Ruby Haunt
6) What Time Is It In Portland? – Bonny Doon
7) Infinity Guitars – Sleigh Bells
8) Naive To The Bone – Marie Davidson
9) Skwod – Nadia Rose
10) Whippin Excursion – Giggs
11) Finder (Hope) – Ninetoes Vs Fatboy Slim
12) Milk – Moderate
13) Filthy Beliiever – BEA1991
14) The Weight Of Gold – Forest Swords
Föstudagur 10. febrúar
Rapparinn GKR fagnar útgáfu GKR EP sem kom út í nóvember með útgáfutónleikum í Gamla bíó. Platan verður leikin í heild sinni á tónleikunum
Dj kvöldsins: B-RUFF Upphitunaratriði: GERVISYKUR HRNNR & SMJÖRVI og ALEXANDER JARL. Miðasala hafin á GKR.is og Enter.is. Húsið opnar klukkan 20:00 og hefjast tónleikarnir klukkan 21:00. 18 ára aldurstakmark og kostar 2900 kr inn.
Hljómsveitin Fufanu heldur útgáfuhóf í kjallaranum á Palóma vegna útgáfu breiðskífunar Sports. Hljómsveitin tekur vel valda slagara og mun svo dj-a eftir á. Raftónlistarmaðurinn Andi sér um upphitun. Fjörið hefst klukkan 22:00 og það kostar 1000 kr inn.
Skemmtistaðurinn Barananas heldur upp á tveggja ára afmæli með tónleikum:
20:30 WESEN
21:30 Krakk & Spaghettí
22:15 Hermigervill DJ set
Laugardagurinn 11.febrúar
Þungarokks hljómsveitin Röskun frá Akureyri heldur útgáfutónleika á Hard Rock Café klukkan 22:00. Miðaverð 2500 kr.
Tónleikar með Berglindi Maríu Tómasdóttur í Mengi. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Húsið verður opnað klukkan 20:30. Miðaverð: 2000 krónur. Á tónleikunum hljómar tónlist fyrir flautu; stundum eina, stundum fleiri, oftast í rauntíma en einnig heyrist í uppteknum flautum fyrri tíma. Á köflum hljómar líka sónn, suð og hávaði.
Skemmtistaðurinn Barananas heldur upp á tveggja ára afmæli með tónleikum:
20:30 Birth Ctrl
21:30 Landaboi$
22:15 Vaginaboys LIVE DJ set
Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýtt efni með listamönnum á borð við Vince Staples, Stormzy, Baba Stiltz, Fufanu, Mac DeMarco, Toro Y Moi og mörgum fleirum. Straumur með Óla Dóra í kvöld á X-inu 977 frá 23:00.
1) BagBak – Vince Staples
2) Big For Your Boots – Stormzy
3) XXX200003 – Baba Stiltz
4) Evening Prayer – Jens Lekman
5) How We Met, The Long Version – Jens Lekman
6) This Old Dog – Mac DeMarco
7) My Old Man – Mac Demarco
8) Omaha – Toro Y Moi
9) Gone For More – Fufanu
10) Your Fool – Fufanu
11) Creepin’ – Moon Duo
12) The Death Set – Moon Duo
13) ’83: Foxx and I – The Magnetic Fields
14) Can You Deal – Bleached
15) Lucky Girl – Fazerdaze
Iceland Airwaves tónlistarhátíðin tilkynnti fyrr í dag um 15 listamenn sem munu koma fram á hátíðinni dagana 1. til 5. nóvember á þessu ári. Þeir erlendu listamenn sem tilkynntir voru eru; Arab Strap, Benjamin Clementine, Kelly Lee Owens, Be Charlotte, Gurr, og Xylouris White. Hátíðin tilkynnti einnig um níu íslenska listamenn; Ásgeir, RuGl, Auður, GKR, Hugar, Soffíu Björg, Glowie, Emmsje Gauta og Emiliönu Torrini.
Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýtt efni með listamönnum á borð við Thundercat, Geotic, Jacques Green, Knxwledge., Young Faters, Wellness og mörgum fleirum. Straumur með Óla Dóra í kvöld á X-inu 977 frá 23:00.
1) Show You the Way (feat. Kenny Loggins & Michael McDonald) – Thundercat
2) Actually Smiling – Geotic
3) Real Time – Jacques Green
4) Random Haiku Generator – Sin Fang, Sóley og Örvar Smárason
5) Noistakes – Knxwledge.
6) Only God Knows (feat. Leith Congregational Choir) – Young Fathers
7) Matter Of Time – Surfer Blood
8) Snowdonia – Surfer Blood
9) Mostly Blue – Wellness
10) Darling – Real Estate
11) Thinning – Snail Mail
12) High ticket attractions – The New Pornographers
Hljóðinnsetning belgíska listamannsins Nicolas Kunysz í Mengi frá klukkan 14 til 22. Aðgangur ókeypis. Innsetningin er hluti af tónlistarhátíðinni Myrkir músíkdagar sem verður sett fimmtudaginn 26. janúar nk.
Tónlistarmaðurinn Berndsen kemur fram ásamt hljómsveit á Kex Hostel klukkan 21:00. Aðgangur ókeypis
Prins póló með tónleika á Bryggjunni Brugghús klukkan 22:00. Aðgangur ókeypis
Laugardagur 28. janúar
Suð, Stroff, Argument og Knife Fights koma fram á Gauknum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og aðgangur ókeypis.
REYKJAVÍKURDÆTUR koma fram á Hard Rock Cafe klukkan 23:00. 2000 kr inn.
Sin Fang, Sóley and Örvar Smárason úr hljómsveitinni múm munu gefa út lag saman í lok hvers mánaðar á árinu 2017. Fyrsta lagið heitir Random Haiku Generator og kom út í dag. Um er að ræða power-ballöðu með raftónlistar áhrifum.
Sónar Reykjavík hefur tilkynnt um síðustu viðbæturnar í dagskrá hátíðarinnar og dagskrá hennar eftir dögum. Alls bætast nú 16 listamenn, hljómsveitir og plötusnúðar við dagskrá þessarar 3 daga tónlistarhátíðar sem fram fer í Hörpu dagana 16., 17. og 18. febrúar.
Meðal þeirra sem nú bætast við dagskrá hátíðarinnar eru; hollenska poppdrottningin BEA1991, Palmomen II sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir nýbylgjutónlist sína, nýstirnin aYia sem nýlega gáfu út sína fyrstu plötu hjá Bedroom Community, Hatari sem í mánuðinum hlutu Best Live Band in Iceland verðlaun Reykjavik-Grapevine Awards, hip hop bandið Shades of Reykjavik og Berndsen sem gefur út nýja breiðskífu fyrir hatíðina.
Meðal þeirra alþjóðlegu listamanna sem koma fram á Sónar Reykjavík 2017 eru; Fatboy Slim (UK), Moderat (DE), De La Soul (US), Giggs (UK), Sleigh Bells (US), Tommy Genesis (US), Nadia Rose (UK), Ben Klock (DE), Forest Swords (UK), Helena Hauff (DE), BEA1991 (NL), Palmbomen II (NL) Blawan (UK), B.Traits(UK), Sapphire Slows (JP), Pan Daijing (CN), Johan Carøe (DK), JOHN GRVY (ES), Marie Davidson (CA), Vatican Shadow (US), Oddisee (US)
Meðal þeirra íslensku listamanna sem koma fram á Sónar Reykjavík 2017 eru;
GusGus, FM Belfast, Samaris, Emmsjé Gauti, Exos,Aron Can, Glowie, GKR, Sing Fang, Berndsen, Kött Grá Pje, Sturla Atlas, Shades of Reykjavik, Cyber, Hatari, aYia, sxsxsx, Alvia Islandiaog Örvar Smárason (múm/FM Belfast) sem kemur fram á sínum fyrstu tónleikum sem sóló-listamaður
Sónar Reykjavík fer fram á fjórum sviðum í Hörpu, m.a. bílakjallara tónlistarhússins sem breytt verður í næturklúbb.
Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýtt efni með listamönnum á borð við Arcade Fire, Japandroids, Angel Olsen, Bonobo, Fred Thomson og mörgum fleirum. Straumur með Óla Dóra í kvöld á X-inu 977 frá 23:00.
1) I Give You power (ft. Maves Staples) – Arcade Fire
2) True Love and a Free Life of Free Will – Japandroids
3) Arc of Bar – Japandroids
4) Fly On Your Wall – Angel Olsen
5) Music Is The Answer – Joe Goddard
6) 7th Sevens – Bonobo
7) Misremembered – Fred Thomas
8) 2008 – Fred Thomas
9) Open Letter to Forever – Fred Thomas
10) Enter Entirely – Cloud Nothings
11) Twist You Arm (Roman Flugel remix) – Ten Fé
12) Daddy, Please Give A Little Time To Me – Ariel Pink & Weyes Blood