Straumur 3. febrúar 2025

Notion, Jamie xx,  Marie Davidson, Momma, Sleigh Bells, Mariana Zispin, Jónfrí, Snorri Helgason, Mallrat og fleiri koma við sögu í Straumi með Óla Dóra á slaginu 22:00 á X-inu 977!

  1. The Days (NOTION Extended Remix) – Chrystal
  2. F.U ft (Erykah Badu) – Jamie xx  
  3. Demolition – Marie Davidson 
  4. Penthouse samba – Marina Zispin
  5. Pavement – Mallrat
  6. I want you fever – momma
  7. wanna start a band – Sleigh Bells
  8. Heather Park (salute Remix) – Ewan McVicar 
  9. FERÐUMST AFTURÁBAK – Holy Hrafn, Dr. Vigdís Vala 
  10. Galdrasnerill – Slummi, Jamesendir
  11. Bon Bon (Andrew VanWyngarden Remix) – Fcukers
  12. yeah i like ah – Khadija Al Hanafi
  13. Borgartún – Snorri Helgason
  14. Gamlar venjur – Jónfrí

Streymið nýju plötu Sleigh Bells

 

Ef þú ert orðin(n) þreytt(ur) á lélegum hljómgæðum í gömlu hátölurum og vantar bara herslumuninn uppá að sprengja þá til að hafa ástæðu til fjárfesta í nýjum ætti Bitter Rivals að vera svarið. Sleigh Bells koma til með að gefa plötuna út þann 8. október og verður hún sú þriðja sem kemur frá bandinu. Dúóið hefur hins vegar tekið forskot á sæluna og smellt plötunni í heild sinni á netið, þá er bara að botna græjurnar og hlusta á lætin hér.

Fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Sleigh Bells

Hávaða poppdúóið Sleigh Bells hefur sent frá sér lagið “Bitter Rivals“ ásamt vídeói og er það fyrsta smáskífan sem heyrist af væntanlegri  plötu og jafnframt titillag hennar. Breiðskífan kemur út þann 8. október, verður það þriðja plata sveitarinnar og fylgir á eftir Reign Of Terror sem kom út í fyrra. 10 lög munu verða að finna á plötunni sem Andrew Dawson mixaði en hann er helst þekktur fyrir vinnu sína með Kanye West og Jay-Z. Alexis Krauss söngkona sveitarinnar gefur þessum tveimur spöðum ekkert eftir í laginu“Bitter Rivals“ og spittar sig í gegnum þétt hávaða riff í boði  Derek E. Miller gítarleikara.