Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýtt efni frá Baths, Errorsmith, Kamasi Washington, Torres og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra í kvöld klukkan 23:00 á X-inu 977.
1) Unfold – Moods
2) Tailwhip – Men I Trust
3) Yeoman – Baths
4) I’m Interesting, Cheerful and Sociable – Errorsmith
5) Desire – Kamashi Washington
6) A Forest (the Cure cover) – Frankie Rose
7) Helen In The Woods – Torres
8) What You Want Me To Do – Galcher Lustwerk
9) Is It Dry – Project Pablo
10) Special – Angel Olsen
Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýjar plötur frá Rostam, Arial Pink og Cut Copy auk þess sem spilað verður nýtt efni frá Burial, The xx, Cults og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra í kvöld klukkan 23:00 á X-inu 977.
1) Dedicated to Bobby Jameson – Ariel Pink
2) Bubblegum Dreams – Ariel Pink
3) I Took Your Picture With My Eyes Closed – Cults
4) On Hold (Jamie xx remix) – The xx
5) Rodent – Burial
6) No Fixed Destination – Cut Copy
7) Versus Game – Blue Hawaii
8) Sumer – Rostam
9) Half Light – Rostam
10) Don’t Let It Get To You (reprise) – Rostam
11) Emotion – Curls
12) 28 (Prod. KAYTRANADA & BADBADNOTGOOD) – Matt Martians
13) 4Real – Steve Lacy
14) Do Yourself a Favor – Ariel Pink
Í Straumi í kvöld verður farið yfir nýjar plötur frá Kedr Livanskiy og Mount Kimbie auk þess sem spilað verður nýtt efni frá Tomas Barfod, Radiator Hospital, Coucou Chloe og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra í kvöld klukkan 23:00 á X-inu 977.
1) Where Are We – Not Waving
2) Lónólongó – Andi
3) Pretty Baby – Sassy 009
4) Your Name – Kedr Livanskiy
5) April – Kedr Livanskiy
6) Delta – Mount Kimbie
7) Heatwave – Amber Mark
8) Things That Matter (ft. Louise Foo & Sharin Foo – Tomas Barfod
9) Talisa (ft. Karen O) – Daniele Luppi + Parquet Courts
10) Pastoral Radio Hit – Radiator Hospital
11) Stamina – Coucou Chloe
12) The Garden – Carla Dal Forno
Hljómsveitin Pink Street Boys sendu okkur upphafslagið af væntanlegri plötu á dögunum. Lagið heitir Blastoff og verður á plötunni Smells Like Boys sem kemur út hjá Tólf Tónum í haust. Í tilefni þess sendum við nokkrar tónlista tengdar spurningar á Jónbjörn Birgisson gítarleikara sveitarinnar.
Segðu okkur aðeins frá nýja laginu ykkar Blastoff?
Okkur langaði til þess að gera einfalt sprengjulag. Textinn er jafn heilalaus og lagið.
Hvað er það besta við að vera tónlistarmaður?
Að hitta aðra tónlistamenn sem eru á svipaðri bylgjulengd.
En versta? Að þurfa að heyra allt ruslið sem er í gangi í dag.
Hvaða tónlistarmann/hljómsveit myndiru mest vilja hita upp fyrir? John Fogerty eða GG Allin
Hvað er besta tónlist sem þú hefur uppgötvað á árinu? Nýja platan frá Sick Thougts
The Suaves Child Molesters Wet Ones
Hvað er uppáhalds kvikmyndatónskáldið þitt/uppáhalds tónlist í bíómynd? Uppáhalds soundtrackið mitt er úr myndinni Gummo. The Warriors í öðru sæti.
Hvað er besta tónlistarkvikmynd sem þú hefur séð? Grand Theft Parsons, frekar slöpp mynd en geggjuð músík.
Hvað er uppáhalds tímabilið þitt í tónlistarsögunni (og af hverju?) ’66 til ’76 þá varð allt virkilega hrátt. Menn voru að átta sig á distorition gíturum og það er enn smá country í rokkinu.
Hvað er 5 mest spiluðu lögin og í iTunes-inu þinu/ Spotify? Flying Burrito Brothers – Sin City The Stereo Shoestring – On the Road South Fire – Flames (Fuzzaðasta lag sem samið hefur verið) The Gizmos – Muff Divin’ The Tammys – Part of Growing Up
En plötur? The Byrds – Sweetheart of the Rodeo Sick Thoughts – Songs about people you hate Electric Eels – Die Electric Eels
Hvað eru bestu tónleikar sem þú hefur séð nýlega (undanfarið ca. ár)?
Andy California í Boston. Kolruglaður Boston rokkari sem ber enga virðingu fyrir gítarnum sínum. Henti honum út um allt og tók sóló með því að stappa á honum. Skelkur í Bringu voru líka frábær en ég man ekki hvar. Örugglega niðrí bæ
Uppáhalds plötuumslag? The Moonhearts – st (2010)
Hvaða tónlistarmönnum lífs eða liðnum værirðu helst til í að taka jam-session með? Væri til í að þýða lag með Ómari Ragnarsyni, fá svo Link Wray til að tromma á meðan ég og Dick Dale gítar bötlum.
Uppáhalds plötubúð í heiminum? Fór í Amoeba í San Fransisco í Janúar. Þeir áttu allt ALLT sem ég var að leita að. Besta kaffið er samt í 12 Tónum.
Ef þú gætir unnið með hvaða upptökustjóra sem er, hver myndi það vera? Treysti ekki upptökustjórum. Gera þetta bara sjálfur.
Hvaða plata fer á á rúntinum? Bestof CCR. Ef hann er of rispaður þá bara góðan mix disk frá Axeli Gítarleikara.
Hvað var síðasta tónlist sem þú keyptir? Fór í einhverja úthverfisbúllu plötubúð í Boston. Þar keypti ég mér Electric Eels, Hasil Adkins og Zero Boys. Keypti líka allt af Andy California.
Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í á tónleikum? Ekki neyðarlegt fyrir mig en það fékk maður flogakast útaf skjávarpashowinu okkar einusinni. Það var hresst.
Hvað lætur þú á fóninn í fyrirpartínu á laugardagskvöldi? Get ekki farið út úr húsi nema að ég hlusti á Born To Lose með The Heartbreakers. Annað sem klikkar ekki er Moonhearts með lagið I Hate Myself og ef ég er að fara niðrí bæ, sem gerist ekki oft, þá er það The Freeze – I Hate Tourists
Enn í eftirpartínu? Klaus Weiss Rhythm & Sounds – Survivor á repeat þangað til að allir fara heim og ég get farið að sofa.
Tónlistamaðurinn Andri Eyjólfsson sem gengur undir nafninu Andi gaf út sína fyrstu plötu á síðasta ári hjá útgáfunni Lady Boy Records. Í dag sleppir hann frá sér sínu fyrsta tónlistarmyndbandi sem nefnist Lónólongó. Gígja Jónsdóttir leikur aðalhlutverk og leikstjóri er Sigurður Möller Sívertsen, kvikmyndatöku annaðist Heimir Gestur Valdimarsson. Andi kemur fram á Húrra á morgun (07.09.17) ásamt Grísalappalísu og mun leika Lónólongó í bland við ný lög af væntanlegri plötu sem mun koma út snemma árs 2018.
Í Straumi í kvöld verða teknar fyrir nýjustu plötur LCD Soundsystem og Bicep auk þess sem leikið verður nýtt efni frá John Maus, Washed Out, Kaytranada, Matthew Dear og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra í kvöld klukkan 23:00 á X-inu 977.