Miðvikudagur 23. apríl
Hljómsveitin Samúel Jón Samúelsson Big Band leikur á Gamla gauknum í tilefni að tónleikaferð sveitarinnar um evrópulöndin Þýskaland, Austurríki, Sviss, Tékkland og Ungverjaland í tilefni af útgáfu hljómplötunnar 4 Hliðar í evrópu. Tónleikarnir hefjast kl 22:00 og miðaverð er 1500 kr.
Pólska tónlistarkonan Katarzyna Nowak spilar á ókeypis tónleikum innan ramma hátíðarinnar List án landamæra á Rósenberg. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og auk Nowak koma Steinunn Ágústsdóttir, Benni Hemm og Stuðboltarnir fram.
Fimmtudagur 24. apríl
Í tilefni af bæði hækkandi sól og útgáfu Brighter Days, þriðju breiðskífu FM Belfast, verður blásið til sumargleði í Mengi á Sumardaginn fyrsta frá 16:00 – 18:00. Sannkölluð sumarstemming verður í gangi: bræðurnir Hilmar Guðjónsson og Lalli töframaður verða að minnsta kosti með eitt skemmtiatriði, DJ set frá FM Belfast þar sem spiluð verða lög af nýju plötunni í bland við aðra slagara, grillaðar verða bulsur og pulsur, flutt verður eins og ein ræða og að lokum verður frumsýnt glænýtt tónlistarmyndband eftir Magnús Leifsson við Brighter Days titillag plötunnar. Það er frítt inn.
Ben Frost frumflytur sitt nýjasta verk, A U R O R A á Kaffibarnum. Tónleikarnir hefjast klukka 18 og það er frítt inn.
FUTUREGRAPHER, ORANG VOLANTE, TANYA & MARLON og DJ DORRIT koma fram á Heiladans 34 á Bravó. Fjörið byrjar 21:00 og það er ókeypis inn.
Hljómsveitirnar kimono, Sin Fang og Oyama leiða hesta sína saman á Gamla Gauknum. Húsið opnar 21:00 og fyrsta band byrjar 22:00. 1500 kr inn.
Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn heldur tónleikar á Rósenberg ásamt hljómsveit þar sem hún spilar brot af sínum uppáhalds jazzlögum. Aðgangur ókeypis og tónleikarnir hefjast klukkan 22:00.
Föstudagur 25. apríl
Shahzad Ismaily bandarískur tónlistarmaður af pakistönskum uppruna kemur fram í Mengi. Það kostar 2000 kr inn og hefjast tónleikarnir klukkan 21:00.
Skotinn Mick Hargan og kanadabúinn Sarah Noni spila á fyrsta kvöldi á tónlistarhátíðinni Sumarloft á Loft Hostel. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og er ókeypis inn.
Futuregrapher, AMFJ, Krakkkbot, russian.girls, Chris Sea og DJ Myth & Lazybones koma fram á Cafe Ray Liotta á sérstöku raftónlistarkvöldi Rhythm Box Social. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 500 kr. inn.
Laugardagur 26. apríl
Danska tónskáldið & spunameistarinn Anne Andersson kemur fram í Mengi. Það kostar 2000 kr inn og hefjast tónleikarnir klukkan 21:00.
Bluegrass hljómsveitin Illgresi kemur fram ásamt Skúla mennska á öðru kvöldi tónlistarhátíðarinnar Sumarloft á Loft Hostel. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og er ókeypis inn.
Ljónagryfja Reykjavíkurdætra fer fram á The Celtic Cross og Café Ray Liotta.
Neðri hæð (Café Ray Liotta)
19:00 – Fríyrkjan
20:00 – Ribbaldar
20:45 – Sparkle Poision
21:30 — Hljómsveitt
22:15 – Kælan Mikla
23:00 — In The Company of Men
23:45 — Conflictions
00:30 — Captain Fufanu
01:15 — Mc Bjór og bland
– LEYNIGESTIR –
02:00 – Reykjavíkurdætur
Efri hæð (The Celtic Cross)
19:00 – 20:30 + 23:00 – 00:00 = LAUST FYRIR SKRÁÐA
20:30 — Bláfugl
21:00 — Hjalti Jón Sverrisson
21:30 — Múfasa Makeover
22:00 — Karólína rappari
22:15 — Cryptochrome
23:00 — Tuttugu
00:00 -03:00 = Dj Cream n’ Suga
Sunnudagur 27. apríl
Norsku tónlistarmennirnir David Pavels og M. Rodgers koma fram á þriðja kvöldi tónlistarhátíðarinnar Sumarloft á Loft Hostel. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og er ókeypis inn.