Íslenska reggí hljómsveitin Ojba Rasta sendi á dögunum frá sér lagið Hreppstjórinn sem verður að finna á væntanlegri plötu sveitarinnar. Lagið er eftir Teit Magnússon hljómsveitarmeðlim en texti lagsins á sér tvær uppsprettur báðar frá 19. öld; annars vegar er erindið brot úr Bragnum um Þorstein á Skipalóni, hins vegar eru viðlögin tvö erindi úr ljóði eftir Kristján Jónsson Fjallaskáld. Textinn var síðan mótaður og túlkaður af höfundi og flytjanda lagsins. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
![](https://straum.is/wp-content/uploads/2012/09/255253_425253287521435_688396370_n-540x534.jpeg)