Los Angeles dúóið Poolside endurhljóðblönduðu lag Matthew Dear – Her Fantasy á dögunum. Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Dear – Beams sem kemur út 27. ágúst. Hlustið á remixið hér fyrir neðan.
Los Angeles dúóið Poolside endurhljóðblönduðu lag Matthew Dear – Her Fantasy á dögunum. Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Dear – Beams sem kemur út 27. ágúst. Hlustið á remixið hér fyrir neðan.
Reykvíska partíbandið Retro Stefson sendi í dag frá sér lag af væntanlegri samnefndri plötu, sem kemur út með haustinu. Lagið heitir Glow og er annað lagið til að heyrast af plötunni, það fyrsta var hið mjög svo vinsæla lag Qween. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Kanadíska hljómsveitin Japandroids spilar á tónleikum á Gamla Gauknum miðvikudaginn 22. ágúst. Hljómsveitina skipa þeir Brian King gítar/söngur og David Prowse trommur/söngur. Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu – Post Nothing snemma árs 2009 og platan Celebration Rock fylgdi á eftir fyrr í sumar. Báðar hafa þær fengið einróma lof gagnrýnenda auk þess sem tónleikar sveitarinnar þykja einstök upplifun. Við hringdum í Brian og spurðum hann út í tónleikaferðalög, nýju plötuna og hverju íslendingar mega eiga von á tónleikum sveitarinnar hér á landi. Hlustið á það hér fyrir neðan:
Viðtal við Brian King:
Hljómsveitin Sudden Weather Change mun hita upp fyrir Japandroids en þeir gáfu nýverið út sína aðra breiðskífu, Sculpture. Það verður því boðið upp á tónleikaveislu á Gamla Gauknum þann 22. ágúst næstkomandi. Miðasala fer fram hér: http://midi.is/tonleikar/1/7053/
Kanadíska einsmannshljómsveitin Paper Beat Scissors heldur tónleika á Faktorý á fimmtudagskvöld. Um er að ræða verkefni tónlistarmannsins Tim Crabtree, sem er Englendingur að uppruna, en hefur verið búsettur í Halifax í Kanada frá árinu 2008. Tónlistinn einkennist af einstakri rödd hans í bland við gítarplokk, blásturshljóðfæri og dáleiðandi lúppur.
Fyrsta plata Paper Beat Scissors, sem er samnefnd, kom út í vor. Við gerð plötunnar naut hann liðsinnis fjölda lykilmanna í kanadísku tónlistarsenunni. Platan er hljóðblönduð af Jeremy Gara úr Arcade Fire og spilar m.a. Sebastian Chow úr Islands á henni.
Tim hitar stuttlega upp á Hemma og Valda miðvikudagskvöldið 15. ágúst, en heldur svo tónleika ásamt Snorra Helgasyni og Boogie Trouble á Faktorý fimmtudagskvöldið 16. ágúst. Miðaverð á tónleikana er 1000 krónur og hefjast þeir klukkan 21:00.
Fyrir neðan má sjá Paper Beat Scissors flytja lag sitt „Rest Your Bones“ undir berum himni, og hér er hægt að hlusta á plötu hans í heild sinni.
1. hluti
2. hluti
3. hluti
4. hluti
1) Blue Meanies – Opossom
2) Chained (Monument remix) – The xx
3) You’re The One (Deadboy remix) – Charli XCX
4) SUCCUBI – Azealia Banks
5) Chemical Legs – Com Truise
6) Graveyard (TRUST remix) – Feist
7) Getaway Tonight – Opossom
8) Girl – Opossom
9) Electric Hawaii – Opossom
10) Why Why – Opossom
11) Cola Elixir – Opossom
12) Outer Space – Opossom
13) Cold Nites – How To Dress Well
14) Cali In A Cup – Woods
15) Size Meets The Sounds – Woods
16) On When You Get Love And Let Go When You Give It – Stars
17) Backlines – Stars
18) The Base – Paul Banks
19) A Form Of Change – Simian Mobile Disco
20) Earthforms – Matthew Dear
21) Rá-ákö-st – Lindström
22) Sleeping In My Car – Moon King
23) BC – Cold Showers
24) So Destroyed – Prince Rama
25) Elizabeth’s Theme – Dirty Beaches
26) Sweet Talk – Jessie Ware
Bandaríski tónlistarmaðurinn Ty Segall gefur út smáskífuna The Hill þann 4. september næstkomandi. Lagið verður einnig að finna á væntanlegri breiðskífu sem fengið hefur nafnið Twins og kemur út í október hjá plötufyrirtækinu Drag City. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Breska raftónlistar dúóið Simian Mobile Disco gefa út EP plötuna A Form of Change þann 2. október næstkomandi. Fyrr á þessu ári sendi sveitin frá sér plötuna Unpatterns, en öll lögin af A Form of Change voru tekin upp samhliða henni. Hlustið á titillagið hér fyrir neðan.
Á næsta fimmtudag klukkan 22:00 verður frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um íslensku hljómsveitina Sudden Weather Change. Myndin ber nafnið Ljóðræn Heimildarmynd og er eftir söngvara og gítarleikara sveitarinnar Loga Höskuldsson, sem fylgdist með árángri hljómsveitarinnar eftir að hún vann Björtustu Vonina á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2009. Myndin inniheldur m.a. innskot frá stuttum evróputúr, upptökum á nýju efni ásamt því að hljómsveitarmeðlimir bregða gjarnir á leik í nokkrum atriðum hennar. Aðgangur að viðburðinn er ókeypis. Eftir sýningu myndarinnar mun hljómsveitin OYAMA troða upp í bíósalnum. Kvöldið er fimmta kvöldið í röð fastakvölda á fimmtudögum í Bíó Paradís, þar sem boðið verður upp á fjölbreytt úrval tóna og takta, fyrir bíó- og tónleikaþyrsta gesti. Horfið á stiklu úr myndinni hér fyrir neðan.
Þann 27. ágúst gefur bandaríski raftónlistarmaðurinn Matthew Dear út sína fimmtu plötu – Beams. Platan fylgir á eftir hinni frábæru Black City sem kom út árið 2010. Dear hefur látið hafa eftir sér að hann sé margbrotin persóna og að útkoman á plötunni sé eftir því og hann blandi saman hinum ýmsu stefnum á Beams. Hlustið á lögin Earthforms og Overtime af plötunni hér fyrir neðan.
mp3
mp3
Hinn ungi og hæfileikaríki tónlistarmaður Nicolas Jaar tók að sér að endurhljóðblanda nýjustu smáskífu Cat Power – Cherokee. Cherokee verður að finna á plötunni Sun sem er fyrsta plata Cat Power með eigin efni í sex ár. Hægt er að hlusta á endurhljóðblöndu Jaar hér fyrir neðan.
mp3