Fimmtudagur 14. júlí
Snorri Helgason fagnar útgáfu sinnar fjórðu plötu, Vittu til, á húrra. Hann kemur fram með stórri hljómsveit, strengjum, brassi og öllu. Húsið opnar 20:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Rafpoppsveitin Lily The Kid og Halldór Eldjárn (úr Sykri) koma fram á tónleikum á Loft Hostel. Tónleikarnir hefjast 20:30 og það er ókeypis inn.
Föstudagur 15. júlí
Reggísveitin Hjálmar spilar á Húrra. Tónleikarnir byrja klukkan 21:00 og miðaverð er 3500 krónur.
Nicolas Kunyszc kemur fram í Mengi. Tónlist Nicolas fléttast úr rafhljóðum, upptökum héðan og þaðan, ólíkum hljóðfærum, þetta er margradda og þéttofinn hljóðvefur sem spannar mikla breidd, lágtíðni og fíngerð blæbrigði, ærandi drunur og allt þar á milli. Tónleikarnir byrja 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Laugardagur 16. Júlí
Tónlistarhátíðin KEXPort verður haldin í portinu bak við Kexið. Það eru tónleikar allan daginn og fram á kvöld og dagskráin er eftirfarandi:
12:00 DJ Flugvél og geimskip
13:00 $igmund
14:00 Hórmónar
15:00 Hildur
16:00 Auður
17:00 Mugison
18:00 Alvia Islandia
19:00 Tómas Jónsson
20:00 Tilbury
21:00 Singapore Sling
22:00 Misþyrming
23:00 Grísalappalísa
DJ Óli Dóri spilar svo tónlist milli atriða eftir 19:00.
Kandíflossdjasskvartettinn MJÁ, skipaður tónlistarmönnunum og þúsundþjalasmiðunum Pétri Ben gítarleikara, Ingibjörgu Elsu Turchi bassaleikara, Tuma Árnasyni saxófónleikara og Magnúsi Trygvasyni Eliassen, trommuleikara, kemur fram í Mengi. Hefst 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.