Nú rétt í þessu var full dagskrá fyrir Iceland Airwaves hátíðina kynnt en hana má nálgast með því að smella hér. Hátíðin er haldin í 16. skipti í ár og fer fram dagana 5.-9. nóvember en um 220 sveitir munu koma fram, þar af 67 erlendar. Þar má nefna sveitir eins og Flaming Lips, The Knife, The War on Drugs, Caribou, Samaris, Unknown Mortal Orchestra, Future Islands, Anna Calvi, How To Dress Well, Sin Fang, Hozier, Sóley, FM Belfast, Jungle, Klangkarussell, La Femme, Mammút, Kelela, Radical Face, Mugison, Eskmo, Valdimar, East India Youth, Árstíðir, Jaakko Eino Kalevi, Prins Póló, Agent Fresco, Ballet School, Ezra Furman, Lay Low, Kwabs, Son Lux, Tomas Barfod, The Vintage Caravan og Vök.
Month: September 2014
Straumur 15. september 2014
Í Straumi í kvöld kíkjum við á nýtt efni frá SBTRKT, Slow Magic, Goat, Mr Twin Sister, Ryan Adams og mörgum öðrum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur 15. september 2014 by Straumur on Mixcloud
1) Everybody Knows – SBTRKT
2) Problem Solved (ft. Jessie Ware) – SBTRKT
3) Gon Stay (ft. Sampha) – SBTRKT
4) Our Love (Daphni mix) – Caribou
5) Girls – Slow Magic
6) Waited 4 U – Slow Magic
7) Unfurla – Clark
8) Needle and a Knife – Tennis
9) In The House Of Yes – Mr Twin Sister
10) Twelfe Angels – Mr Twin Sister
11) Beautiful Thing – King Tuff
12) Words – Goat
13) Goatslaves – Goat
14) Kim – Ryan Adams
Tónleikar helgarinnar 12-13. september 2014
Föstudagur 12. september
– Októberfest fer fram í tjaldi við Háskóla Íslands
Svæðið opnar kl. 20:30
Major Pink 21.00
RVK Dætur 21.40
Gauti 22.40
Úlfur Úlfur 23.10
Dikta 00.00
Jón Jónsson 01.00
Ojbarasta 02.00
Nova tjald
Housekell og Unnsteinn Manuel 22:30
– Brött Brekka, Bob og Caterpillarmen halda tónleika á Dillon.
– Naðra, Misþyrming og Úrhrak koma fram á Gauknum.
Laugardagur 13. september
– Hljómsveitin Hjaltalín kemur fram á tónleikum á Húrra, laugardagsvködlið 13. september. Á tónleikunum hyggst hljómsveitin frumflytja ný lög í bland við eldra efni. Eftir tónleikana hyggst sveitin jafnframt taka sér smá hlé frá tónleikahaldi og einbeita sér að því að klára nýtt efni í hljóðverinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og miðaverð er 2.000 kr. Eingöngu selt við hurð.
– Soffía Björg kemur fram í Mengi ásamt hljómsveit og mun flytja tónlist með extra skammt af tilfinningum. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og það kostar 2000 kr. inn.
– Októberfest fer fram í tjaldi við Háskóla Íslands
Svæðið opnar kl. 22 og fyrsta hljómsveit byrjar kl. 23.
Páll Óskar 23.00
Steindi og Bent 23.30
Friðirk Dór 00.10
Amabadama 01.00
Nova tjald
DJ Margeir og Högni Egilsson 23:00
Aphex Twin – Syro forhlustun
Breska plötuútgáfufyrirtækið Warp Records sem þekkt er fyrir þá mörgu raftónlistarmenn sem það hefur á sínum snærum, auglýsti nýverið viðburði tengda tónlistarmanninum Aphex Twin víðsvegar um heim, nánar tiltekið á tónleikastöðum í borgunum London, París, New York, Los Angeles, Chicago, Toronto, Brussel og Utrecht. Þar voru tækifæri fyrir áhugasama að heyra nýja plötu Aphex Twin, Syro, hátt í tveimur vikum áður en útgáfudagur hennar rennur í garð. Platan inniheldur tólf lög sem hann hefur unnið að síðasta áratug og er hans fyrsta breiðskífa síðan árið 2001. Eitt var að búa í nálægð við einhvern þessa viðburða en annað að fá tækifæri til að sækja einn slíkan. Innganga var ókeypis en til þess að fá hana þurfti að finna auglýsingu frá einum tónleikstaðanna sem sagði til um framhaldið. Reglan var sú að hver staður mátti einungis dreifa fimmtíu miðum hver.
Það vildi svo heppilega til að ég hóf námsdvöl mína nýlega í borginni Utrecht í Hollandi. Hún er rétt sunnan við Amsterdam og þar búa tæplega jafn margir og á Íslandi. Verandi bæði tónlistarunnandi og Aphex Twin aðdáandi, fann ég hvar hlustunarpartýið yrði haldið og sendi tölvupóst í von um það að fá miða. Ég var himinlifandi þegar mér barst svar þar sem mér var tilkynnt að ég væri í hópi þeirra sem kæmu til með að hlýða á plötuna að kvöldi 10. september. Leiðinni var heitið á lítinn, virtan og framsækinn tónleikastað sem heitir EKKO.
Ólívugrænn er liturinn
Á meðan ég bíð eftir því að staðurinn opni virði ég fyrir mér ólívugræn (sem er augljóslega sértilvalinn litur Syro) Aphex Twin merkin í gluggum staðarins. Þegar inn er komið bíður mín fatahengi þar sem vinalegur starfsmaður tekur við frakka mínum til geymslu. Dyravörður í jakkafötum leitar á mér og fullvissar sig um það að ég sé með enga myndavél, upptökutæki eða síma (sem ég skyldi eftir í frakkanum). Þar á eftir er mér afhendur bæklingur með myndefni ásamt lagalista plötunnar á bakhlið. Ég skelli mér á barinn, fæ mér einn bjór og lendi í spjalli við aðra gesti. Því næst skrái ég mig á lista til þess að fá meldingu þegar platan komi út og hvar ég geti keypt hana í bænum. Ég fæ varning með merki tónlistarmannsins: plastpoka sem ég get sett plötuna í þegar ég eignast hana, límmiða og gervi-greiðslukort. Spennan er þegar mikil.
Spennan nær hámarki þegar hurðir tónlistarsalsins opnast upp á gátt og gestirnir streyma inn. Við okkur blasir græn lýsing og merki Aphex Twin sem varpað er á sviðið með sitthvorum skjávarpanum. Ég tek eftir tveimur einmana diskókúlum í loftinu sem fá líklega ekki að njóta sín þetta kvöld. Eftir örlitla bið tekur til orðs maður, líklega viðburðastjórinn, sem talar á hollensku og segir að enginn annar bær í landinu hefði komið til greina fyrir þetta hlustunarpartý en Utrecht. Hann biður alla einnig hjartanlega velkomna og lýkur ræðu sinni á orðunum „Come to daddy”, sem er vísun í samnefnt lag Aphex Twin frá árinu 1997, og þá byrjar Syro að hljóma.
Draumkenndur og duttlungafullur
Hljóðstyrkurinn er nægilegur í kerfinu á EKKO. Platan er hvorki spiluð of hátt né lágt að mínu mati. Fyrsta lag plötunnar er minipops 67 [120.2] [source field mix] sem var gert aðgengilegt á alnetinu nýverið sem forsmekkur af því sem koma skyldi. Þéttur en slitróttur takturinn er kunnuglegur þeim sem hafa hlustað á Aphex Twin áður. Raddirnar sem spila stórt hlutverk í laginu eru eins og sögumenn sem leiða mann inn í draumkenndann og duttlungafullan heim Aphex Twin. Ég byrja strax að dilla höfði og öxlum. Sumir gestanna tóku með sér skriffæri og rita niður hjá sér athugasemdir. Lögin halda áfram að rúlla og eru jafn mislynd og þau eru mörg. Það sama má segja um gestina sem fáir virðast þekkja hvorn annan. Ég lít við og við í bæklinginn sem tilgreinir nöfn laganna og hversu mörg slög eru í þeim á mínútu. Ég reyni að fylgja listanum eftir en missi mig oft í eigin hugsunum. Platan byrjar í um 120 slögum á mínútu en þau verða fleiri með hverju lagi. Það er við miðbik plötunnar sem ég finn fyrir mikilli samrýni meðal gestanna sem klappa og fagna þegar hverju lagi lýkur. Hver og einn er að njóta á sinn hátt. Nokkrir dansa með tilþrifum, aðrir sitja á gólfinu og sumir liggja. Platan endar á fallegum píanóleik eins og platan hans, Drukqs, gerði einnig 13 árum áður. Ég loka augum mínum á meðan aitsatsana spilast og er sem mjúk fiðursæng sem faðmar mig og biður mig að hvílast.
Alsæll, agndofa, uppskrúfaður, örlítið sveittur og verulega sáttur geng ég út úr tónleikasalnum. Á meðan ég trappa mig niður ræði ég upplifun mína við aðra gesti á barnum. Ég kveð að lokum, nappa auka bæklingi og límmiða fyrir vin, gleymi að pissa og hjóla heim.
Snilldarlegur hrærigrautur
Það sem ég heyrði þetta kvöld væri hægt að eyða löngum tíma í að reyna að skilgreina. Teknó ýmiskonar (acid og ambient), IDM og slitrur af ýmsum stefnum sem ég þekki ekki nægilega vel. Þessi plata er þó töluvert mýkri en Drukqs sem dæmi og minnir frekar á hans fyrri plötur. Eins og við mátti búast voru lögin margslungin og kaflaskipt. Sannkallaður hrærigrautur, snilldarlega framreiddur af Aphex Twin. Ég hreyfði mig allan tímann. Þetta var í senn eins og að stunda íhugun og að fara út á lífið í leit að ást. Snilld þessa tónlistarmanns var gefin góð skil þetta kvöld. Viðstaddir meðtóku músíkina og sýndu viðbrögð sín persónubundið. Við vorum þarna saman komin til að deila þessari upplfun í návist hvors annars en í sitt hvoru lagi.
Alexander Jean Edvard Le Sage de Fontenay
Syro kemur út 22. september. Hægt að forpanta hana hér. (https://bleep.com/release/
Straumur 8. september 2014
Í Straumi í kvöld kíkjum við á nýtt efni m.a. frá Tv On The Radio, Aphex Twin, Julian Casablancas, Flying Lotus, Skuggasvein og Caribou. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur 8. september 2014 by Straumur on Mixcloud
1) Happy Idiot – Tv On The Radio
2) minipops 67 [120.2][source field mix] – Aphex Twin
3) HIGHER (ft. Raury) – SBTRKT
4) Put Your Number In My Phone – Ariel Pink
5) Human Sadness – Julian Casablancas + The Voidz
6) Never Catch Me (ft. Kendrick Lamar) – Flying Lotus
7) Can’t Do Without You (Tale Of Us & Mano Le Tough remix) – Caribou
8) Cheap Talk – Death From Above 1979
9) Sundara – Odesza
10) For Us (ft. Briana Marela) – Odesza
11) Eldskírn – Skuggasveinn
12) Ooo – Karen O
13) Visits – Karen O
14) Native Korean Rock – Karen O
Tónleikar helgarinnar 4.-6. september
Fimmtudagur 4. september
Óregla og Bangoura Bandið koma fram á Gauknum. Tónleikarnir hefjast 22:00 og 1000 krónur veita aðgang að gleðinni.
Föstudagur 5. september
GusGus efna til útgáfutónleika fyrir nýjustu breiðskífu sína, Mexico, í Listasafni Reykjavíkur. Mexico kom út í vor og hefur hlotið prýðisdóma víðast hvar og er ein besta íslenska plata þess sem liðið er af árinu að mati Straums. Tónleikarnir hefjast 21:00 og aðgangseyrir er 5000 krónur.
Hljómsveitin Hjaltalín sem samið hefur tónlist við kvikmyndina Days of Gray munu flytja tónlist sína live undir sýningu myndarinnar í Kaldalónssal Hörpu. Kvikmyndatónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og aðgangseyrir er 3900 krónur.
Kría Brekkan spilar á tónleikum í Mengi. Kría Brekkan er Kristín Anna Valtýsdóttir; tónlistarkona, gjörningarlistamaður, lambaljósmóðir, stjörnuspekingur, myndlistar-og handverkskona, hænsna- og bílabóndi, hugmyndaarkítekt og áhugamanneskja um tengsl manneskjunnar við stokka, steina, sólkerfið sjálft, segulsvið þess og aðdráttarafl alls hvort heldur sem er eður ei. Hún mun leika og syngja frumsamin píanólög og tónleikarnir hefjast 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Dimma og Nykur efna til þungarokksveislu á Gauknum sem hefst 22:00 og það kostar 1500 krónur inn.
Laugardagur 6. september
Uni Stefson og Young Karin leiða saman hesta sína á Kex Hostel. Uni Stefson er sólóverkefni Unnsteins Manuels Stefánssonar, söngvara Retro Stefson. Young Karin er samstarfsverkefni Loga Pedro og Karin Sveinsdóttur og kom sú sveit fyrst fram á sjónarsviðið undir nafninu Highlands árið 2013. Logi er eins margir vita bróðir Unnsteins og einnig meðlimur í Retro Stefson. Tónlist Uni Stefson og Young Karin er á margan hátt settlegri og jafnvel dramatískari en hljómsveit þeirra bræðra. Fyrsta smáskífa Uni Stefson leit dagsins ljós fyrir skömmu og heitir „Engin Grætur“ og var samin fyrr á árinu af Unnsteini í Berlín. Það fyrsta sem heyrðist frá Young Karin var smáskífan „Hearts“ og spannar hljóðheimur þeirra allt frá hip hop til listræns rafpopps.Tónleikarnir hefjast á slaginu 21:00 og það er ókeypis inn.
Rappkvennaherinn Reykjavíkurdætur kemur fram á Dillon en tónleikarnir hefjast stundvíslega 23:00 og það kostar 500 kall inn.
Tónlistarmaðurinn Loji kemur fram í Mengi. Loji er frá Reykjavík og spilar einnig tónlist undir eigin nafni. Hann hefur spilað með tveimur vinum sínum þeim Grím & Jóni síðan 2013 og saman spila þeir draumkennda popptónlist um lífið, vini og alheiminn. Tónleikarnir byrja 21:00 og aðgangseyrir er 2000 krónur.
Nýtt lag með Aphex Twin
Fyrsta lagið af nýjustu plötu Aphex Twin sem er beðið með mikilli eftirvæntingu um allan heim var að detta á netið. Lagið ber hinn þjála titil Minipops 67 [120.2][Source Field Mix] og er löðrandi í fingraförum rafmeistarans sem hefur greinilega engu gleymt. Aphex Twin gaf út síðustu breiðskífu sína, Drukqs, árið 2001 þannig að aðdáendur eru orðnir langeygðir eftir Syro sem kemur út þann 23. september. Minipops 67 er með níðþungum og brotnum takti í bland við draugalegar raddið og bjagaða píanóhljóma og hefði ekki getað komið frá neinum öðrum en sjení-inu sjálfu. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Fyrsta myndbandið frá Sindra Eldon
Tónlistarmaðurinn Sindri Eldon gefur út sína fyrstu sólóplötu sem ber nafnið Bitter & Resentful þann 6. október. Sindri sendi í gær frá sér sitt fyrsta myndband sem er við lagið Honeydew og var gert af honum sjálfum auk Rútar Skærings N. Sigurjónssonar. Sindri hefur komið víða við á tónlistarferlli sínum og hefur m.a. verið meðlimur í hljómsveitum á borð við Dáðadrengi, Slugs og Dynamo Fog.
Straumur 1. september 2014
Í Straumi í kvöld kíkjum við á nýtt efni frá Slow Magic, QT, Shon, Zammuto, Interpol, Blonde Redhead og mörgum fleirum. Straumur með Óla Dóra á slaginu 23:00 á X-inu 977.
Straumur 1. september 2014 by Straumur on Mixcloud
1) Hey QT – QT
2) Waiting For You – Slow Magic
3) Cat On Tin Roof – Blonde Redhead
4) No More Honey – Blonde Redhead
5) Want Your Feeling – Jessie Ware
6) Begging For Thread – Banks
7) Gamma Ray (Legowelt remix) – Richard Fearless
8) IO – Zammuto
9) Electric Ant – Zammuto
10) All The Rage Back Home – Interpol
11) Everything Is Wrong – Interpol
12) The Chase – Sohn
13) West Coast (Coconuts Records cover) – Mainland
14) This Is The End – Asonat