Bandaríska grasrótar- sækadelíusveitin Prince Rama mun spila á Faktorý föstudaginn 24. ágúst næstkomandi.
Prince Rama er skipuð systrunum Taraka og Nimai Larson sem voru aldar upp í Hare Krishna kommúnu í Florida og skólaðar í School of Museum of Visual Art í Boston. Í dag búa systurnar í Brooklyn og hafa alls sent frá sér 4 breiðskífur. Sú síðasta, Trust Now, sem kom út í fyrra var gefin út af Paw Tracks útgáfunni sem er í eigu Animal Collective. Systurnar gefa út plötuna Top 10 Hits Of The End Of The World þann 6. nóvember næstkomandi
Kría Brekkan, sem áður var í hljómsveitinni múm, mætir með föruneyti og hitar upp samkomuna. Hægt er að nálgast miða á midi.is: http://midi.is/tonleikar/1/