Krúttbomban Danny Brown kemur til með að senda frá sér sína þriðju breiðskífu Old um næstu mánaðarmót og hefur hann nú sent frá sér titillag plötunnar „Side A (Old)“. Einnig hefur hann birt stutt „teaser“ myndband fyrir plötuna sem ætti að láta hip-hop aðdáendur fá vatn í munninn.