Föstudagur 6. maí
The Last Waltz, í leikstjórn Martins Scorsese, fjallar um lokatónleika The Band sem voru haldnir á þakkargjörðardaginn 25. nóvember 1976 í San Francisco. Tónleikarnir verða 40 ára á þessu ári og af því tilefni verður myndin sýnd í Bíó Paradís klukkan 20:00.
Ballbandið Babies strýkur sveifluhælana og heldur dansleik á Húrra. Áður en herlegheitin hefjast mun hljómsveitin Blakkát kítla eyrnasneplana með nokkrum vel völdum lögum af væntanlegri plötu. Blakkát byrja Á SLAGINU 22:00. Babies flokkurinn sýður svo upp dansgófið. Ókeypis inn.
Laugardagur 7. maí
Tvö bönd frá Philadelphiaborg í Bandaríkjunum spila á tónleikum í hjólabrettagarði Brettafélags Reykjavíkur ásamt nokkrum íslenskum böndum.
Húsið opnar kl. 19 og það kostar 1000 kr. inn. Fram koma: HALDOL og BLANK SPELL frá Philadelphia ásamt – KÆLAN MIKLA – KVÖL – GRAFIR
Skúli mennski treður upp í Mengi með ferskt efni klukkan 21. Það kostar 2000 kr inn.
Hljómsveitin NOISE fagnar útgáfu Echoes, fjórðu breiðskífu sinnar, með útgáfutónleikum í Tjarnarbíói. Miðaverð: 2.500 kr. Tónleikarnir byrja kl. 21 en húsið opnar kl. 20. Miðasala á Midi.is.