Flestar tilnefningar í ár hlýtur Auður, alls átta tilnefningar en platan hans Afsakanir sló heldur betur í gegn á nýliðnu ári. Hljómsveitin Valdimar átti gríðargóðu gengi að fagna í fyrra og hlýtur sjö tilnefningar í flokki rokktónlistar. Fast á hæla Valdimars kemur tónlistarkonan Guðrún Ýr eða GDRNmeð sex tilnefningar, fyrir plötu ársins í popptónlist, sem söngkona ársins og texta- og lagahöfundur svo fátt eitt sé nefnt en innkoma hennar var sem ferskur andvari á nýliðnu ári. Jónas Sig hlýtur fimm tilnefningar í flokki popptónlistar fyrir plötu sína Milda hjartað. Jónas er þar á persónulegri nótum en áður og er m.a. tilnefndur sem bæði laga- og textahöfundur ársins. Að auki fær Milda hjartað tilnefningu fyrir hljóðheiminn þar sem félagi Jónasar, Ómar Guðjónsson er ábyrgur fyrir Upptökustjórn en það er verðlaunaflokkur sem er endurvakinn nú í ár. Í hiphoppinu eru það svo JóiPé & Króliásamt Herra Hnetusmjör sem eru atkvæðamestir með þrjár tilnefningar.
Í opnum flokki hlýtur hljómsveitin Umbra þrjár tilnefningar en það gerir einnig Gyða Valtýsdóttir sem á m.a. plötur bæði í opnum flokki og í kvikmyndatónlist. Í flokki djass og blústónlistar er Sunna Gunnlaugs atkvæðamest með fjórar tilnefningar en svo eiga þeir Scott McLemore, Karl Olgeirsson og Agnar Már Magnússon þrjár hver. Árið í sígildri og samtímatónlist var geysisterkt og fjölbreytt að mati dómnefndar. Hvað varðar fjölda tilnefninga þá er það Víkingur Heiðar Ólafsson sem hlýtur í ár fjórar tilnefningar fyrir útgáfu sína og flutning á verkum Johann Sebastian Bach. Anna Þorvaldsdóttir fylgir þar á eftir og er með þrjár tilnefningar í flokki sígildrar og samtímatónlistar, fyrir plötu sína AEQUA og tónverkin METACOSMOS og Spectra.
Í ár verða veitt 37 verðlaun auk Heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna. Veitt verða verðlaun í flokki popp-, rokk-, hiphop- og raftónlistar, djass- og blústónlistar, sígildrar- og samtímatónlistar og í opnum flokki. Í þeim síðasta eru veitt verðlaun fyrir plötu ársins í opnum flokki, fyrir leikhús- og kvikmyndatónlist auk loks þjóðlagatónlist.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 13. mars og verður verðlaunahátíðin í beinni útsendingu á RÚV.
Það er Samtónn sem stendur að baki Íslensku tónlistarverðlaununum en aðilar að Samtóni eru STEF – Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, Tónskáldafélag Íslands, Félag tónskálda og textahöfunda, SFH-Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda auk aðildarfélaga.Tilgangur Samtóns er að vinna að sameiginlegum hagsmunum og styrkja stöðu höfunda, flytjenda, framleiðenda og annarra rétthafa að tónlist. Samtónn kemur fram sameiginlega fyrir hönd íslenskra rétthafa og tónlistarfólks.
Eftirtaldir hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2018.
Rokk, popp, raftónlist, rapp og hip hop – Tilnefningar 2018
Plata ársins – Rapp og hip hop
JóiPé & Króli – Afsakið hlé
Elli Grill – Pottþétt Elli Grill
Birnir – Matador
Herra Hnetusmjör – KBE kynnir: Hetjan úr hverfinu
Cyber – Bizness
Plata ársins – Rokk
Valdimar – Sitt sýnist hverjum
Benny Crespo’s gang – Minor Mistakes
Vintage Caravan – Gateways
Dr. Spock – Leður
Hórmónar – Nananabúbú
Plata ársins – Popp
Prins Póló – Þriðja kryddið
John Grant – Love Is Magic
Jónas Sig – Milda Hjartað
Svavar Knútur – Ahoy! Side A
GDRN- Hvað ef
Plata ársins – Raftónlist
Auður – Afsakanir
aYia-aYia
Kælan Mikla – Nótt eftir nótt
Andi – Allt í Einu
Hermigervill – II
Söngvari ársins
Auður
Valdimar Guðmundsson
John Grant
Króli (Kristinn Óli Haraldsson)
Svavar Knútur
Söngkona ársins
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Margrét Rán
JFDR (Jófríður Ákadóttir)
Brynhildur Karlsdóttir
Bríet
Lag ársins – Rokk
Benny Crespo’s Gang – Another Little Storm
Valdimar – Stimpla mig út
Une Misere – Wounds
Hórmónar – Kynsvelt
Hatari – Spillingardans
Lag ársins – Popp
Auður – Heimskur og breyskur
Prins Póló – Líf ertu að grínast
Vök – Autopilot
GDRN ft. Floni & ra:tio – Lætur mig
Bríet – In Too Deep
Lag ársins – Rapp og hip hop
JóiPé & Króli – Í átt að tunglinu
Logi Pedro – Dúfan mín
Birnir – Út í geim
Herra Hnetusmjör & Ingi Bauer – Upp til hópa
Cyber – Hold
Textahöfundur ársins
Auður – (Auðunn Lúthersson)
Jónas Sig
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Svavar Pétur – Prins Póló
Valdimar
Lagahöfundur ársins
Auður – Auðunn Lúthersson
GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)
Svavar Pétur Eysteinsson
Jónas Sig
Valdimar
Tónlistarviðburður ársins
Aldrei fór ég suður
Fiskidagstónleikarnir á Dalvík.
Háskar
Valdimar – Útgáfutónleikar
John Grant – Love is Magic
Tónlistarflytjandi ársins
Hatari
Auður – (Auðunn Lúthersson)
Vintage Caravan
Hórmónar
JóiPé & Króli
Bjartasta vonin – Verðlaun veitt í samstarfi við Rás 2
Bagdad Brothers
Bríet
ClubDub
Matthildur
Une Misère
Tónlistarmyndband ársins – Verðlaun veitt í samstarfi við Albumm.is
Albumm.is og Íslensku Tónlistarverðlaunin
Auður – Afsakanir – Leikstjóri: Erlendur Sveinsson
Between mountains – into the Dark – Leikstjóri: Haukur Björgvinsson
GDRN – Lætur mig ft. Floni & ra:tio – Leikstjóri: Ágúst Elí
Herra hnetusmjör – Fóbó – Leikstjóri: Eiður Birgisson
Hugar – Saga – Leikstjóri: Máni Sigfússon
Ólafur Arnalds – re:member – Leikstjóri: Thora Hilmar
Special-K – Date Me I’m Boerd – Leikstjóri: Kristín Helga Ríkharðsdóttir
Teitur Magnússon ásamt Mr. Silla – Orna – Leikstjóri: Logi Hilmarsson
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2018 – Opinn flokkur
Plata ársins – Þjóðlagatónlist
Ylja – Dætur
Ásgeir Ásgeirsson – Travelling through cultures
Umbra – Sólhvörf
Umbra – Úr myrkrinu
Teitur Magnússon – Orna
Plata ársins – Opinn flokkur
Sunna Friðjóns – Enclose
Maximús Músíkús og Sinfóníuhljómsveit Íslands – Maximús fer á fjöll
Gyða Valtýsdóttir – Evolution
Hekla – Á
Kjass – Rætur
Plata ársins – Leikhús- og kvikmyndatónlist
Atli Örvarsson – Lói þú flýgur aldrei einn
Davíð Þór Jónsson – Kona fer í stríð
Gyða Valtýsdóttir – Mihkel
Veigar Margeirsson – Efi, dæmisaga
Jóhann Jóhannsson – Mandy
Lag ársins/Tónverk ársins í Opnum flokki
Snorri Hallgrímsson – I know you´ll follow
Arnór Dan – Stone by stone
Gyða Valtýsdóttir – Moonchild
Veigar Margeirsson – Efi
JFDR – Gravity
Plötuumslag ársins
The Vintage Caravan – Gateways
Jóel Pálsson – Dagar koma
Jónas Sig – Milda hjartað
Skálmöld – Sorgir
Umbra – Sólhvörf
Upptökustjórn ársins
Jónas Sig. – Milda hjartað – Ómar Guðjónsson
Ylja – Dætur – Guðmundur Óskar Guðmundsson
Víkingur Heiðar Ólafsson – Johann Sebastian Bach – Christopher Tarnow
Auður – Afsakanir – Auðunn Lúthersson, Addi 800, Glenn Schick
John Grant – Love Is Magic – : Ben Edwards
Valdimar – Sitt sýnist hverjum – Pétur Ben (upptökustjóri) Magnús Öder (hljóðblöndun) Alan Douches (hljómjöfnun)
Sígild- og samtímatónlist – Tilnefningar 2018
Plata ársins
Anna Þorvaldsdóttir – AEQUA
Jóhann Jóhannsson – Englabörn & Variations
Þráinn Hjálmarsson – Influence of buildings on musical tone
Víkingur Heiðar Ólafsson – Johann Sebastian Bach
Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir – Söngvar Jórunnar Viðar – Jórunn Viðar – Söngvar
Nordic Affect – He(a)r
Tónverk ársins
Farvegur – Þuríður Jónsdóttir
From My Green Karlstad – Finnur Karlsson
Loom – María Huld Markan Sigfúsdóttir
METACOSMOS – Anna Þorvalds
Silfurfljót – Áskell Másson
Spectra – Anna Þorvalds
Split thee, Soul, to Splendid Bits (attn.: no eternal life/light this time around) – Bára Gísladóttir
Söngvari ársins
Benedikt Kristjánsson
Eyjólfur Eyjólfsson
Oddur Arnþór Jónsson
Söngkona ársins
Hallveig Rúnarsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir
Valgerður Guðnadóttir
Tónlistarflytjandi ársins – Einstaklingar
Sæunn Þorsteinsdóttir
Una Sveinbjarnardóttir
Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónlistarflytjandi ársins – Hópar
Barokkbandið Brák
Kammersveitin Elja
Schola Cantorum
Nordic Affect
Strokkvartettinn Siggi
Tónlistarviðburður ársins
Budapest Festival Orchestra og Iván Fischer – Tónleikar í Eldborg, Hörpu
#bergmálsklefinn
Brothers
Víkingur Heiðar Ólafsson – útgáfutónleikar, Bach
Barokkbandið Brák – Spíralar Versala
Edda II: Líf guðanna – 23. mars / SÍ og Schola Cantorum
Íslendingasögur – Sinfónísk sagnaskemmtun – hátíðarviðburður fullveldisafmælisins 1. desember
Tónlistarviðburðir ársins
Myrkir músíkdagar
Óperudagar í Reykjavík
Reykholtshátíð
Bjartasta von í sígildri og samtímatónlist verður kynnt 13. mars þegar tónlistarverðlaunin verða afhent.
Djass og blús – Tilnefningar 2018
Plata ársins
Karl Olgeirsson – Mitt bláa hjarta
DÓH Tríó – DÓH
Sunna Gunnlaugs – Ancestry
Agnar Már – Hending
Scott McLemore – The Multiverse
Tónverk ársins
Mitt bláa hjarta – Tónskáld: Karl Olgeirsson / Textahöfundur: Karl Olgeirsson
Norðurljós – Tónskáld: Sigmar Þór Matthíasson
Ancestry – Tónskáld: Sunna Gunnlaugs
To catch a glimpse – Tónskáld: Scott McLemore
Bugða – Tónskáld: Agnar Már Magnússon
Lagahöfundur ársins
Karl Olgeirsson
Sunna Gunnlaugs
Scott McLemore
Agnar Már Magnússon
Sigmar Þór Matthíasson
Tónlistarflytjandi ársins – Einstaklingur
Kjartan Valdimarsson
Sunna Gunnlaugs
Magnús Trygvason Eliassen
Jóel Pálsson
Daníel Helgason
Tónlistarflytjandi ársins – Hópar
Stórsveit Reykjavíkur
DÓH – Tríó
Ingi Bjarni Trio
Tónlistarviðburður ársins
Blúshátíð í Reykjavík
Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans
Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur
Jazzhátíð Reykjavíkur
Freyjujazz
Bjartasta von í djass og blús verður kynnt á hátíðinni þann 13. mars næstkomandi.