Bandaríski tónlistarmaðurinn Ty Segall gefur út smáskífuna The Hill þann 4. september næstkomandi. Lagið verður einnig að finna á væntanlegri breiðskífu sem fengið hefur nafnið Twins og kemur út í október hjá plötufyrirtækinu Drag City. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Category: Fréttir
EP plata frá Simian Mobile Disco
Breska raftónlistar dúóið Simian Mobile Disco gefa út EP plötuna A Form of Change þann 2. október næstkomandi. Fyrr á þessu ári sendi sveitin frá sér plötuna Unpatterns, en öll lögin af A Form of Change voru tekin upp samhliða henni. Hlustið á titillagið hér fyrir neðan.
Heimildarmynd um Sudden Weather Change
Á næsta fimmtudag klukkan 22:00 verður frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um íslensku hljómsveitina Sudden Weather Change. Myndin ber nafnið Ljóðræn Heimildarmynd og er eftir söngvara og gítarleikara sveitarinnar Loga Höskuldsson, sem fylgdist með árángri hljómsveitarinnar eftir að hún vann Björtustu Vonina á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2009. Myndin inniheldur m.a. innskot frá stuttum evróputúr, upptökum á nýju efni ásamt því að hljómsveitarmeðlimir bregða gjarnir á leik í nokkrum atriðum hennar. Aðgangur að viðburðinn er ókeypis. Eftir sýningu myndarinnar mun hljómsveitin OYAMA troða upp í bíósalnum. Kvöldið er fimmta kvöldið í röð fastakvölda á fimmtudögum í Bíó Paradís, þar sem boðið verður upp á fjölbreytt úrval tóna og takta, fyrir bíó- og tónleikaþyrsta gesti. Horfið á stiklu úr myndinni hér fyrir neðan.
Matthew Dear – Beams
Þann 27. ágúst gefur bandaríski raftónlistarmaðurinn Matthew Dear út sína fimmtu plötu – Beams. Platan fylgir á eftir hinni frábæru Black City sem kom út árið 2010. Dear hefur látið hafa eftir sér að hann sé margbrotin persóna og að útkoman á plötunni sé eftir því og hann blandi saman hinum ýmsu stefnum á Beams. Hlustið á lögin Earthforms og Overtime af plötunni hér fyrir neðan.
mp3
mp3
Nicolas Jaar remixar Cat Power
Hinn ungi og hæfileikaríki tónlistarmaður Nicolas Jaar tók að sér að endurhljóðblanda nýjustu smáskífu Cat Power – Cherokee. Cherokee verður að finna á plötunni Sun sem er fyrsta plata Cat Power með eigin efni í sex ár. Hægt er að hlusta á endurhljóðblöndu Jaar hér fyrir neðan.
mp3
Nýtt frá Woods
Freak Folk hljómsveitin Woods sendir frá sér plötuna Bend Beyond þann 18. september. Hljómsveitin gaf nýlega út fyrstu smáskífuna af plötunni – Cali in a Cup, sem var eitt af sumarlögum Straums í ár. Lagið Size Meets the Sounds kom á SoundCloud í dag. Lagið er í svipuðum gæðum og Cali in a Cup og því við miklu að búast þegar sjöunda plata Woods lendir í plötubúðir. Hlustið á Size Meets the Sounds hér fyrir neðan.
Nýtt lag frá The xx
Lag af væntanlegri plötu bresku hljómsveitarinnar The xx birtist á netinu í dag. Lagið heitir Chained og er annað lagið sem komið hefur á netið af plötunni Coexist sem kemur út 11. september næstkomandi. Hlustið á það hér fyrir neðan.
Söngvari Interpol með nýja plötu
Paul Banks söngvari New York hljómsveitarinnar Interpol gefur út sína aðra breiðskífu þann 23. október næstkomandi. Banks gefur út undir listamannsnafninu Julian Plenti. Platan heitir Banks og fylgir á eftir plötu hans – Julian Plenti Is… Skyscraper sem kom út árið 2009. Hægt er að hlusta á lagið The Base, sem er fyrsta smáskífan af plötunni hér fyrir neðan.
Saint Lou Lou
Sænsk- áströlsku tvíburasysturnar í Saint Lou Lou gefa út sína fyrstu smáskífu 27. ágúst. Lagið heitir Maybe You og er draumkennt og poppað í einstökum flutningi systranna, sem spáð hefur verið mikilli velgengni af gagnrýnendum. Á plötunni verða einnig endurhljóðblandanir frá CFCF, Oxford, Le Crayon, Good Night Keaton og Pyramid. Hlustið á lagið hér fyrir neðan.
Lagalisti Vikunnar – Straumur 213
Hér er hægt að hlusta á þáttinn!
1) Cash, Diamond Rings, Swimming Pools – D E N A
2) The Trouble With Candyhands – Deerhoof
3) Yet Again – Grizzly Bear
4) Hippies Is Punks – Wavves
5) Mtn Tune – Trails And Ways
Japandroids umfjöllun og viðtal:
6) The Night Of Wine and Roses – Japandroids
7) Boys are leaving town – Japandroids
8) Young Heart Spark Fire – Japandroids
9) Younger Us – Japandroids
10) Wet Hair – Japandroids
11) The House That Heaven Built – Japandroids
12) Henrietta – Yeasayer
13) Blue Paper – Yeasayer
14) Reagan’s Skeleton – Yeasayer
15) Earthforms – Matthew Dear
16) Overtime – Matthew Dear
17) Crash Jam – Dan Deacon
18) The Descent – Bob Mould
19) I Know What Love Isn’t – Jens Lekman
20) Become Someone Else’s – Jens Lekman
21) Maybe You – Saint Lou Lou