Árslisti Straums hefst í kvöld

Árslistaþættir Straums, þar sem farið verður gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2023 verður á dagskrá Xins frá klukkan tíu næstu tvö mánudagskvöld. Mánudaginn 11. desember telur Óli Dóri niður bestu erlendu lög ársins 2023 og svo viku seinna þann 18. desember er komið að bestu íslensku.