Myndband frá Halleluwah

Íslenska hip-hop tvíeykið Halleluwah sem samanstendur af þeim Sölva Blöndal og rapparanum Tiny sendi í dag frá sér myndband við lag sitt K2R sem kom út fyrir örfáum vikum. Í lok október er síðan fyrirhuguð útgáfa á tíu tommu sem mun innihalda lögin ”K2R” á A-hlið, og ”Whiplashes” á B-hlið. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sindri Már Sigfússon með nýtt verkefni

 

Tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon sem hefur verið fremstur í flokki í hljómsveitunum Seabear og Sing Fang hefur nú komið þriðja verkefni sínu á stað sem nefnist Pojke. Sindri gaf í dag út lagið She Move Through Air sem er eitt af ferskari íslensku efni sem greinarhöfundur hefur heyrt á þessu ári. Myndband við lagið sem leikstýrt er af Mána M. Sigfússyni er hægt að horfa á hér fyrir neðan. Einnig er hægt að hlaða niður laginu frítt af Soundcloud síðu Pojke.

 

Lagalisti vikunnar – Straumur 221

1. hluti

      1. straumur 221 1 hluti

2. hluti

      2. Straumur 2 1 10

3. hluti

      3. Straumur 221 3 hluti

 

1) Screaming Skull – King Tuff
2) Fireflies – Still Corners
3) Wrath Of God – Crystal Castles
4) Pairs – Daphni
5) Yes I Know – Daphni
6) Crashed (Out Soon on Black Butter) – Stay+
7) Is It Honest? – Woods
8) Silver Lining – Guards
9) Way Over Yonder in the Minor Key (Tom Grrrl remix) – Just Another Snake Cult
10) Tipp Topp – Prins Póló
11) Daradada – Grúska Babúska
12) Sérðu mig í lit? Jón Þór
13) Guiding Light (Television cover) – Tennis

Stuttmynd undir áhrifum frá A.C. Newman

A.C. Newman sem leiðir hljómsveitina The New Pornographers frá Kanada mun gefa út sólóplötuna Shut Down The Street þann 9. október næstkomandi. Leikstjórinn James Blose sendi rétt í þessu frá sér stuttmyndina Want You To Know sem sækir áhrif í væntanlega plötu Newman. Horfið á myndina hér fyrir neðan.

Iceland Airwaves sérþættir Straums

Í tilefni þess að Iceland Airwaves 2012 nálgast mun Straumur á X-inu 977 í samstarfi við Tuborg vera með sérþætti um hátíðina alla miðvikudaga frá klukkan 21:00 til 23:00 þar til hún hefst. Í þættinum sem er í umsjón Óla Dóra verður fjallað um þau erlendu og íslensku bönd og listamenn sem spila á Iceland Airwaves í ár, birt verða viðtöl og góðir gestir koma í heimsókn, auk þess sem gefnir verða miðar á hátíðina í hverjum þætti. Fyrsti þátturinn fer í loftið næsta miðvikudag.

Smáskífa frá Daphni

Dan Snaith sem er best þekktur undir nafninu Caribou sleppti frá sér laginu Pairs í gær. Snaith gefur lagið út undir hliðarverkefni sínu Daphni sem hann notar til að gefa út tónlist með elektrónískari áherslum. Lagið verður að finna á plötunni JIAOLONG sem kemur út þann 9. október næstkomandi. Daphni er þriðja nafnið sem Snaith notast við, en hann hóf feril sinn undir nafninu Manitoba. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið Pairs.

Nýtt lag frá guards

 

Indie-rokk hljómsveitin Guards var að senda frá sér smáskífuna Silver Lining af væntanlegri fyrstu plötu sveitarinnar – In Guards We Trust sem kemur út 5. febrúar á næsta ári. Guards er hugarfóstur Richie Follin, bróðir Madeline Folin söngkonu hljómsveitarinnar Cults. Richie er einnig fyrrverandi gítarleikari þeirrar hljómsveitar. Árið 2010  samdi Richie sjö lög  sem hann ætlaði Cults og sendi hann þau til Madeline. Henni fannst lögin frábær en ekki henta hljómsveitinni og lét þau á netið án þess að segja Richie frá því, nokkur blogg fóru á stað og síðan hafa margir beðið spenntir eftir fyrstu stóru plötu Guards. Þessi sjö lög urðu svo Guards ep sem var ofanlega á lista Straums yfir bestu plötur ársins 2010. Hlustið á nýja lagið – Silver Lining og Guards ep í heild sinni hér fyrir neðan.